Bestu tímar ársins í 250 metra skeiði!

Konráð Valur og Kastor á Fjórðungsmóti árið 2021. Ljósmynd: Gísli Guðjónsson
Keppnisárinu á Íslandi sem og víðast annars staðar er nú lokið og allir mótshaldarar ættu að vera búnir að skila inn niðurstöðum. Þá er gaman að skoða stöðulista ársins í mismunandi greinum og það er það sem Eiðfaxi ætlar að gera á næstu vikum.
Á heimasíðu FEIF má skoða íslenska stöðulista sem byggja á tveimur bestu einkunnum (tímum) ársins á tímabilinu 1.janúar – 30.október á alþjóðlegum mótum (e. World ranking). Við byrjum á því að taka fyrir 250 metra skeið. Þá má einnig sjá hér fyrir neðan íslenska stöðulista á öllum mótum ársins.
Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk eiga besta tíma ársins í 250 metra skeiði en þeir líkt og margir aðrir náðu þeir sínum besta árangri á Íslandsmótinu í hestaíþróttum sem fram fór á Brávöllum á Selfossi.
Hér fyrir neðan eru 20 bestu tímar ársins á alþjóðlegum mótum.
30 bestur tímar ársins á Íslandi óháð því hvort mótið var alþjóðlegt eða ekki.
Nr. | Knapi | Hross | Tími | Mót | |
1 | Konráð Valur Sveinsson | Kastor | 21,48 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
2 | Konráð Valur Sveinsson | Tangó | 21,71 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
3 | Hans Þór Hilmarsson | Jarl | 21,73 | Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR | |
4 | Daníel Gunnarsson | Eining | 21,76 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
5 | Ingibergur Árnason | Sólveig | 21,79 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
6 | Daníel Gunnarsson | Kló | 21,99 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
7 | Teitur Árnason | Styrkur | 22,28 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
8 | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Sjóður | 22,29 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
9 | Jóhann Kristinn Ragnarsson | Þórvör | 22,43 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
10 | Þorgeir Ólafsson | Rangá | 22,80 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
11 | Jakob Svavar Sigurðsson | Jarl | 22,84 | Opið WR Íþróttamót Sleipnis | |
12 | Árni Sigfús Birgisson | Dimma | 22,87 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
13 | Sigurbjörn Bárðarson | Alviðra | 22,97 | Skeiðmót Geysis | |
14 | Sigurður Sigurðarson | Tromma | 23,07 | WR suðurlandsmót | |
15 | Viðar Ingólfsson | Ópall | 23,09 | Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR | |
16 | Kristófer Darri Sigurðsson | Gnúpur | 23,11 | Opið WR Íþróttamót Sleipnis | |
17 | Benjamín Sandur Ingólfsson | Fáfnir | 23,13 | Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR | |
18 | Hans Þór Hilmarsson | Vorsól | 23,17 | WR suðurlandsmót | |
19 | Vignir Sigurðsson | Sigur | 23,25 | Íslandsmót Fullorðinna og Ungmenna | |
20 | Ævar Örn Guðjónsson | Vigdís | 23,45 | WR suðurlandsmót | |
21 | Jón Óskar Jóhannesson | Gnýr | 23,67 | Reykjavíkurmeistaramót Fáks WR | |
22 | Árni Björn Pálsson | Ögri | 23,71 | WR Íþróttamót Geysis – opið | |
23 | Gestur Júlíusson | Sigur | 23,82 | Skeiðleikar Skagfirðings II | |
24 | Jón Ársæll Bergmann | Rikki | 23,82 | Opið Gæðingamót Geysis og úrtaka fyrir Fjóðungsmót | |
25 | Sigursteinn Sumarliðason | Bjarki | 23,90 | WR suðurlandsmót | |
26 | Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir | Ylfa | 24,08 | Opið WR Íþróttamót Sleipnis | |
27 | Guðmundur Björgvinsson | Brimar | 24,19 | Opið Gæðingamót Geysis og úrtaka fyrir Fjóðungsmót | |
28 | Jóhann Magnússon | Píla | 24,30 | Stórmót Hrings 2023 | |
29 | Hans Þór Hilmarsson | Drottning | 24,55 | WR suðurlandsmót | |
30 | Þórdís Erla Gunnarsdóttir | Óskastjarna | 24,56 | Opið Gæðingamót Geysis og úrtaka fyrir Fjóðungsmót |