Blær frá Leirlulæk hæst dæmda hrossið í Verden

  • 17. maí 2021
  • Fréttir

Blær frá Leirulæk og Þórður Þorgeirsson. Mynd: Krijn Buijtelaar

Kynbótasýningar eru nú hafnar í Evrópu og allt að fara á fullt í þeim málum í hinum ýmsu löndum. Nú þegar hafa þrjár kynbótasýningar verið haldnar í Þýskalandi. Eiðfaxi fjallaði í síðustu viku eina þeirra sem fram fór á Kronshof, en lesa má um hana hér.

Dagana 11.-13.maí fór svo fram sýningin FIZO Verden þar sem sýnd voru 63 hross í fullnaðardómi.

Hæst dæmdi stóðhestur sýningarinnar var 6.vetra gamall stóðhestur, Blær frá Leirulæk, sem hlaut fyrir sköpulag 8,48, fyrir hæfileika 8,49 og í aðaleinkunn 8,49. Hlaut hann 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja, hófa og prúðleika. Ræktandi hans er Sigurbjörn Jóhann Garðarsson en eigendur Johannes Pantelmann og Volker Sill. Blær er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Þórdísi frá Leirulæk. Knapi á honum var Þórður Þorgeirsson.

Hér fyrir neðan er myndband af Blæ á Skeiði sem Krijn Buijtelaar tók.

Af öðrum áhugaverðum hrossum sem komu þar fram má nefna stóðhestinn Sjafnar frá Syðra-Kolugili sem er ræktaður af Malin Maria Persson en í eigu Stefáns Jóhanns Grétarssonar. Hlaut hann 8,40 í aðaleinkunn þar af 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja. Þá var Mæra vom Kronshof hæst dæmda hryssa sýningarinnar með 8,37 í aðaleinkunn og þar af m.a. 9,0 fyrir tölt og hægt tölt.

Öll sýnd hross í Verden raðað eftir aðaleinkunn.

Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi
IS2015136750 Blær frá Leirulæk 8.48 8.49 8.49 Þórður Þorgeirsson
IS2014155174 Sjafnar frá Syðra-Kolugili 8.2 8.5 8.4 Þórður Þorgeirsson
DE2014234323 Mæra vom Kronshof 8.32 8.4 8.37 Frauke Schenzel
IS2013181812 Mugison frá Þjóðólfshaga 1 8.49 8.18 8.29 Styrmir Árnason
DK2011100117 Guðmundur fra Gultentorp  7.93 8.39 8.23 Styrmir Árnason
DE2012143296 Galsi vom Maischeiderland 8.51 8.02 8.2 Josefin Þorgeirsson
DK2015200111 Hnokkadís fra Guldbæk 8.38 8.09 8.19 Sigurður Óli Kristinsson
IS2015258843 Bjalla frá Miðsitju 8.09 8.22 8.17 Þórður Þorgeirsson
IS2015101166 Þormar frá Prestsbæ 8.44 8 8.16 Þórður Þorgeirsson
IS2016101231 Logi frá Tvennu 8.4 8.02 8.15 Þórður Þorgeirsson
DE2016134222 Ófeigur vom Kronshof 8.06 8.15 8.12 Frauke Schenzel
DE2016234183 Ólína vom Kronshof 8.06 8.12 8.1 Frauke Schenzel
DE2013234268 Smáralind vom Hegebusch 8.11 8.09 8.1 Jolly Schrenk
DE2015134268 Tenór – 8.24 8.02 8.09 Frauke Schenzel
DE2014184453 Kári von der Hartmühle 8.32 7.95 8.08 Susanne Birgisson
DE2014284452 Króna von der Hartmühle 8.12 8.05 8.07 Susanne Birgisson
IS2015181609 Þórálfur frá Flagbjarnarholti 8.28 7.92 8.04 Þórður Þorgeirsson
DE2014156930 Hvirfill von Ögn 8.28 7.89 8.03 Högni Fróðason
DE2015151859 Hylur vom Hofgut Retzenhöhe 8.34 7.85 8.02 Katja Honnefeller
IS2015157775 Byr frá Borgarfelli 8.48 7.75 8.01 Marvin Heinze
IS2015265636 Glódís frá Grund II 7.99 8.02 8.01 Sigurður Narfi Birgisson
IS2010135160 Finnur frá Eyri 8.22 7.83 7.97 Marvin Heinze
IS2016177621 Moli frá Skálafelli I 8.29 7.79 7.97 Húni Hilmarsson
DK2016100029 Ágúst fra Eyfjörd 8.45 7.7 7.96 Sigurður Narfi Birgisson
DE2016156258 Tónn von Faxaból 7.91 7.98 7.95 Þórður Þorgeirsson
DE2014263930 Gleði vom Schloßberg 8.2 7.8 7.94 Lilja Thordarson
DK2013200553 Sía fra Store Skovgaard 8.09 7.79 7.9 Sigurður Óli Kristinsson
IS2015201531 Alda frá Ugluhreiðri 7.57 8.06 7.89 Sophia Henke
DE2012234407 Nína vom Íshof 8.44 7.58 7.88 Lilja Thordarson
IS2014201129 Sóllilja frá Hestasýn 8.01 7.78 7.87 Styrmir Árnason
IS2015281811 Framtíð frá Þjóðólfshaga 1 7.89 7.82 7.85 Sigurður Óli Kristinsson
IS2014182454 Gleymir frá Halakoti 7.65 7.95 7.85 Sigurður Narfi Birgisson
DE2013157897 Spuni vom Ruppiner Hof 7.88 7.82 7.84 Lena Zambetti
DE2015184252 Hákon vom Buchenhain 8.34 7.56 7.83 Sigurður Narfi Birgisson
DE2015143838 Tígull vom Petersberg 8.37 7.54 7.83 Steve Köster
DE2015156311 Eldur vom Ruppiner Hof 7.98 7.72 7.81 Vivien Anna Sigmundsson
IS2010280526 Vök frá Ytra-Hóli 7.89 7.68 7.76 Þórður Þorgeirsson
IS2011181660 Atlentínus frá Hjallanesi 1 8.06 7.53 7.72 Inga Müller
DE2015234931 Brynja vom Ostetal 8.15 7.45 7.7 Sigurður Narfi Birgisson
DK2014200150 Vaka fra Arnarholl 7.96 7.55 7.7 Sigurður Narfi Birgisson
DE2016284371 Fína vom Berghof 8.13 7.45 7.69 Sigurður Narfi Birgisson
IS2016135618 Garri frá Neðri-Hrepp 8.02 7.48 7.67 Vivien Anna Sigmundsson
DE2015263134 Glódís von der Elschenau 8.04 7.45 7.65 Jolly Schrenk
DE2016143749 Oscar vom Forstwald 7.84 7.52 7.63 Þórður Þorgeirsson
IS2016155173 Hvítserkur frá Syðra-Kolugili 7.94 7.42 7.61 Þórður Þorgeirsson
DK2015100611 Konsert fra Stald Klitgaard 8.27 7.21 7.58 Sigurður Óli Kristinsson
IS2016236481 Orða frá Hjarðarholti 7.81 7.45 7.57 Húni Hilmarsson
IS2011186562 Sindri frá Kálfholti 8.1 7.28 7.57 Inga Müller
IS2010281376 Flækja frá Koltursey 7.75 7.45 7.55 Alice Linnebach
DE2011243081 Rauðhetta von Töltmyllan 8.29 7.12 7.53 Styrmir Árnason
IS2012288771 Frostrós frá Hömrum II 8.17 7.13 7.5 Þórður Þorgeirsson
DE2015234922 Jórunn von Myraland 7.94 7.24 7.49 Flora Kröner
DE2015156129 Skuggi von Ögn 7.99 7.18 7.47 Charlotte Cramer
IS2015235480 Ásdís frá Neðri-Hrepp 7.79 7.28 7.46 Vivien Anna Sigmundsson
DE2013234301 Dimma vom Hera-Hof 7.47 7.42 7.44 Charlotte Cramer
NL2014200116 Sigrún frá Langhietlandi 7.96 7.05 7.37 Flora Kröner
DE2016141215 Stormur vom Quillerhof 7.79 7.12 7.35 Marvin Heinze
DK2015200300 Von fra Vissebjerggård 7.56 7.2 7.33 Johannes Uekötter
DK2011100205 Bónus fra Hejelte 7.79 7.02 7.29 Húni Hilmarsson
DK2015100462 Dalvar Drottnari fra Toftedal 7.87 6.88 7.23 Laura Emilie Nielsen
IS2009156957 Klakinn frá Skagaströnd 8.72 Þórður Þorgeirsson
DE2012234196 Skilja vom Sommerfeld 7.64 Lena Maxheimer

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar