Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks 21. mars 2026
Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks fara fram laugardaginn 21. mars næstkomandi í Lýsishöllinni í Víðidal.
Á Degi reiðmennskunnar koma fram reiðkennaraefni Háskólans á Hólum með sýnikennslu. Sýningin hefst 14:00 og er frítt inn á sýnikennsluna.
Um kvöldið fer fram Stórsýning Fáks og hefst sýningin klukkan 20:00. Á eftir sýningunni í anddyri reiðhallarinnar verður trúbator partý með Sigvalda Helga Gunnarssyni.
Miðasala er hafin í Hestakaupfélaginu í Víðidal sem er staðsett í gamla Dýraspítalanum.
Aðgangseyrir:
- Fullorðnir 3.500 kr
- Unglingar og ungmenni 2.500 kr
- Börn 8-13 ára 1.500 kr.
Einnig er hægt að kaupa aðgangsmiða á Stórsýninguna á laugardeginum frá 14:00 og í hurð um kvöldið.
Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks 21. mars 2026
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Folaldasýning Geysis
Liðaslagur Sörla 2026