Folaldasýning Geysis
Folaldasýning Geysis tókst gríðarlega vel síðast og vakti mikla lukku ræktenda og höfum við því ákveðið að endurtaka leikinn!
Sýningin verður haldin sunnudaginn 15. Mars í Skeiðvangi á Hvolsvelli.
Sýningin byrjar kl 13:00 en eigendur folalda eru beðnir að mæta um 12:00.
Dæmt verður í flokki hestfolalda og merfolalda og verða einnig veitt verðlaun fyrir efnilegasta folaldið að mati áhorfenda.
Folaldasýningin er opin öllum og fer skráning fram á [email protected].
Við skráningu þarf að koma fram nafn folalds, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi. Skráningargjald er 2500 krónur, millifært á reikningsnúmer 0308-13-300607 og kt.570169-4089.
Senda þarf kvittun á [email protected] með nafni folalds sem skýringu.
Skráningu lýkur föstudaginn 13. Mars
Vonumst til að sjá sem flesta!
Skemmtinefnd Geysis
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Hestamannafélagið Sörli leitar að móta- og viðburðafulltrúa