Hestamannafélagið Skagfirðingur Daniel Gunnarson er knapi ársins í Skagfirðingi

  • 16. desember 2025
  • Fréttir

Daniel Gunnarsson knapi ársins og Elvar Einarsson formaður Skagfirðings. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Uppskeruhátíð Skagfirðings var haldin í gærkvöldi mánudaginn 15.desember í Tjarnarbæ. Knapar ársins hjá félaginu voruverðlaunaðir ásamt sjálfboðaliða ársins. Hér fyrir neðan má lesa um útnefnda knapa í hverjum flokki ásamt hluta af þeirra árangri í sumar.

Skagfirðingur hefur í nokkur ár verðlaunað sjálfboðaliða ársins, en það er sá félagsmaður sem hefur að óeigingirni og dugnaði verið boðinn og búinn til að sinna hinum ýmsu störfum og tekið þátt í félagsstarfinu að mikilli jákvæðni svo eftir er tekið. JÁ manneskja okkar í ár er Sædís Bylgja Jónsdóttir. Sædís Bylgja er sannur Skagfirðings félagi. Hún hefur verið mjög virk í mótanefnd Skagfirðings í fjölda ára og hefur eftir verið tekið elju og vinnusemi á því sviði. Hún mætir manna fyrst á mót til að sinna verkefnum sem þarf til að mót séu haldin, vinnur sem þulur, ritari, hefur umsjón með tölvumálum og stekkur til í öll verk. Hún fer svo ekki heim fyrr en búið er að ganga frá öllu en það eru leiðinlegu verkin sem virðast of gleymast. Sædís er alltaf boðin og búin til að aðstoða hvar sem þess gerist þörf. Hún er jákvæð, drífandi og mjög svo óeigingjörn á sinn tíma fyrir félagið. Sædís er svo sannarlega vel að viðurkenningu komin.

Félagsmaður Skagfirðings – Sædís Bylgja Jónsdóttir Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Knapi ársins & skeiðknapi ársins – Daniel Gunnarsson

Daniel Gunnarsson var útnefndur knapi ársins 2025 hjá félaginu en hann átti góðu gengi að fanga á skeiðbrautinni en var einnig útnefndur skeiðknapi ársins. Daniel var valinn fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramót í Sviss þar sem hann lenti í 6.sæti í 250m skeiði og 9 sæti í 100m skeiði. Á Íslandsmótinu hlaut hann 3.sæti í 250m skeiði á tímanum 21.97sekúndur. Á Reykjavíkurmeistaramóti sigraði hann gæðingaskeið með einkunnina 8.08, hlaut fjórða sæti í 250m skeið og 150m skeiði (14.54sek). Daniel stendur í sjötta sæti á heimslista FEIF í 250m skeiði og fjórða sæti á Íslandi. Einnig er hann í fjórða sæti í gæðingaskeiði á stöðulista með 8.08 í einkunn.

Knapi ársins og skeiðknapi ársins – Daniel Gunnarsson Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Ungmenni ársins – Þórgunnur Þórarinsdóttir

Þórgunnur átti frábært ár á keppnisbrautinni. Hún var valin fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramótið í Sviss þar sem hún hlaut 2.sæti eftir sætaröðun í fimmgangireið til A-úrslita í tölti og var í 8.sæti í gæðingaskeiði. Á WR Hólamótinu sigraði hún fjórgang, tölt og gæðingaskeið. Á Íslandsmótinu var hún í þriðja sæti í fimmgangi, 8.sæti í gæðingaskeiði og samanlagður sigurvegari í fimmgangsgreinum. Þórgunnur er í 2.sæti í fimmgangi á stöðulista yfir Ísland og top 10 í tölti og gæðingaskeiði.

Knapi ársins – Þórgunnur Þórarinsdóttir / Á mynd: Sigríður Gunnarsdóttir f.h. Þórgunnar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Íþróttaknapi ársins – Kristófer Darri Sigurðsson

Kristófer Darri Sigurðsson sigraði slaktaumatölt á WR Hólamótinu og var í fjórða sæti í fjórgangi á sama móti. Hann átti stórgott mót á Dalvík þar sem hann sigraði hann tölt (7.50) og fjórgang (7.10) með Ósk frá Narfastöðum og var í þriðja sæti í slaktaumatölt með Úlf frá Hrafnagili.

Íþróttaknapi ársins – Kristófer Darri Sigurðsson Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Skapti Steinbjörnsson – Gæðingaknapi ársins

Skapti var í fimmta sæti í B-flokki á Fjórðungsmótinu í sumar með Kul frá Hafsteinsstöðum (8.71) og í B-úrslitum með Bláskegg frá Hafsteinsstöðum ásamt því að sigra B-flokk á Félagsmóti Skagfirðings og var í þriðja sæti í A-flokki á sama móti.

Gæðingaknapi Skagfirðings – Skapti Steinbjörnsson Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Knapar ársins í áhugamannaflokki – María Ósk og Þóranna

Þóranna Másdóttir

Þóranna lenti í fjórða sæti í fjórgangi, fimmgangi, og tölti í Skagfirsku mótaröðinni, í fjórða sæti í fjórgangi á Reiðmannsmótinu og 2 sæti í bæði tölti og fjórgangi á WR Hólamótinu. Einnig sigraði hún B-flokk áhugamanna á Félagsmóti Skagfirðings.

María Ósk Ómarsdóttir

María sigraði tölt á WR Hólamóti Skagfirðings og var í þriðja sæti í fjórgangi. Hún sigraði fjórgang og tölt í Skagfirsku mótaröðinni ásamt því að ná góðum árangri í Áhugamannadeild Norðurlands þar sem hún endaði í öðru sæti yfir heildina.

Knapar ársins í áhugamannaflokki – Þóranna & María Ósk Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Einnig verðlaði félagið þá félagsmenn sem kepptu fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramótinu í Sviss í sumar en það eru Daniel Gunnarsson, Bjarni Jónasson og Þórgunnur Þórarinsdóttir.

 

Katrín Ösp Bergsdóttir Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Einnig var Katrín Ösp Bergsdóttir verðlaunuð fyrir góðan árangur á árinu en þar má helst nefna silfurverðlaun í ungmennaflokki á Fjórðungsmóti Vesturlands með Hrund frá Narfastöðum.

Stjórn Skagfirðings óskar öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar