Einvígi í vændum í Meistaradeild Líflands
Lið Top Reiter/Sumarliðabæjar tók liðaskjöldinn í báðum greinum á skeiðmóti Meistaradeildar Líflands um síðustu helgi
Það stefnir í hádramatískt lokakvöld í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum næstkomandi föstudagskvöld, þann 27. mars. Eftir harða keppni vetrarins er ljóst að baráttan um liðatitilinn stendur á milli tveggja liða sem hafa skipst á að sýna yfirburði á tímabilinu.
Tímabilið hefur verið einkar áhugavert fyrir áhugafólk um hestaíþróttir. Lið Hjarðartúns fór af stað með miklum látum og sat á toppnum eftir fyrstu þrjár greinarnar: fjórgang, slaktaumatölt og fimmgang. Þá tóku liðsmenn Top Reiter/Sumarliðabæjar við keflinu. Þau hafa verið óstöðvandi í síðustu þremur greinum – gæðingalist, gæðingaskeiði og 150 metra skeiði – og hirt liðaskjöldinn í þeim öllum.
Aðeins hálft stig sem skilur að
Fyrir lokakvöldið er staðan sú að nánast ekkert skilur liðin að og má búast við að hver einasti punktur telji í lokauppgjörinu. Top Reiter/Sumarliðabær er með 218 stig og Hjarðartún með 217,5 stig
„Besta liðið verður sent til leiks“ er meðal þess sem fram kom í viðtali við liðsmenn Top Reiter/Sumarliðabæjar þegar þau ræddu við Huldu Geirsdóttur á EiðfaxaTV eftir síðasta skeiðmót. Þar var baráttuandinn greinilegur en Teitur, liðsstjóri liðsins, lofaði hörku baráttu allt til enda og fullyrti að ekkert yrði til sparað; besta liðið yrði sent til leiks til að verja forskotið.
Það er ljóst að liðsmenn beggja liða munu leggja allt í sölurnar til að tryggja sér titilinn.
Staðan í liðakeppni
| Lið | Stig |
| Top Reiter/Sumarliðabær | 218 |
| Hjarðartún | 217.5 |
| IB bílar | 154 |
| Ganghestar / Margrétarhof | 150 |
| Hestvit / Árbakki | 144 |
| Hrímnir / Hest.is | 141.5 |
Einvígi í vændum í Meistaradeild Líflands