Miðar á Stóðhestaveisluna í sölu á morgun
Á morgun verður hægt að kaupa miða á Stóðhestaveisluna 2026 sem haldin verður í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli laugardaginn 28. mars kl 19:00.
Þetta er stærsti og vinsælasti innanhúss viðburður hrossaræktarinnar á Íslandi svo ekki láta þessa veislu framhjá þér fara.
Hægt er að kaupa miða í verslunum Líflands í Reykjavík og á Suðurlandi, verslun Ástundar og verslun Baldvins og Þorvaldar á Selfossi.
Vertu tímanlega að útvega þér miða en takmarkað magn er í boði og síðast komust færri að en vildu.
Miðaverð er 6.500 krónur.
Fréttin hefur verið uppfærð með endanlegri tímasetningu.
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu