Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Equsana fjórgangurinn í Samskipadeildinni

  • 15. febrúar 2023
  • Fréttir
Áhugamannadeild Spretts verður að Samskipadeildinni!

Samskip hefur staðið þétt við bakið á Spretti sem styrktaraðili og munu gera það áfram og nú einnig sem aðalstyrktaraðili áhugamannadeildarinnar. Fimmtudaginn 16. febrúar hefst vinsæla mótaröðin, Áhugamannadeild Spretts að nýju. Byrjað er á keppni í fjórgangi og er styrktaraðili kvöldsins Equsana.

„Keppt verður í fjórgangi og verður gríðarlega spennandi að sjá knapa og hesta koma fram og sýna sitt besta saman. Í deildinni í ár keppa 12 lið, þónokkur nýliðun er í deildinni þetta árið. Sigurvegari fjórgangsins í fyrra var Edda Hrund Hinriksdóttir og lið Heimahaga hneppti liðabikarinn,“ segir í tilkynningu frá stjórn deildarinnar.

Tvær nýjungar eru í deildinni þetta árið. Önnur er sú að allir knapar liðanna hafa þátttökurétt til keppni en einungis þrír efstu knapar í hverju lið gilda til stiga og úrslita. Hin er sú að riðin verða B-úrslit en sá aðili sem vinnur B-úrslitin mun ekki færast upp í A- úrslit.

Eftir síðastliðin 2 ár sem hafa verið mótuð af samkomutakmörkunum verður ánægjulegt að hefja fyrsta mót með áhorfendur á pöllunum og hlakkar aðstandendum deildarinnar að sjá sem flesta! Fyrir þá sem ekki komast ekki á pallana verður Alendis með beina útsendingu.

Kvöldið hefst á setningaathöfn kl 18:30 þar sem liðin verða kynnt og fyrsti hestur í braut er að því loknu eða kl: 19:00. Húsið opnar kl 17:30 og hægt verður að gæða sér á dýrindis kjötsúpu og léttar veigar með.

Styrktaraðili kvöldsins, Equsana verður með sölubás í veislusal Spretts þar sem hestafólk getur keypta gæðavörur á góðu verði.

Ráslisti
Holl Knapi Hestur Lið
1 Sanne Van Hezel Þrá frá Fornusöndum Stjörnublikk
1 Soffía Sveinsdóttir Skuggaprins frá Hamri Hvolpasveitin
1 Patricia Ladina Hobi Siggi Sæm frá Þingholti Mustad Autoline
2 Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir Flugar frá Morastöðum Trausti fasteignasala
2 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Vagnar og þjónusta
3 Sigurður Halldórsson Radíus frá Hofsstöðum Stjörnublikk
3 Garðar Hólm Birgisson Kná frá Korpu Fasteingasalarnir Garðar Hólm og Guðlaug Jóna
3 Sólveig Þórðardóttir Auður frá Akureyri Sveitin
4 Sigurður Jóhann Tyrfingsson Bogi frá Steinsholti Káragerði
4 Herdís Einarsdóttir Trúboði frá Grafarkoti Íslensk verðbréf
4 Gunnar Tryggvason Fönix frá Brimilsvöllum Garðaþjónusta Sigurjóns
5 Inga Kristín Sigurgeirsdóttir Gutti frá Brautarholti Trausti fasteignasala
5 Gréta Vilborg Guðmundsdóttir Ferill frá Stekkjardal Sveitin
6 Eyþór Jón Gíslason Barón frá Stóra-Múla Garðaþjónusta Sigurjóns
6 Jóhann Ólafsson Úlfur frá Hrafnagili Heimahagi
6 Högni Sturluson Hljómur frá Hofsstöðum Mustad Autoline
7 Eyrún Jónasdóttir Baldur frá Kálfholti Hvolpasveitin
7 Hrafnhildur B. Arngrímsdó Loki frá Syðra-Velli Fasteingasalarnir Garðar Hólm og Guðlaug Jóna
7 Pálmi Geir Ríkharðsson Brynjar frá Syðri-Völlum Íslensk verðbréf
8 Þorvarður Friðbjörnsson Játning frá Fornusöndum Stjörnublikk
8 Ólafur Flosason Viktor frá Skúfslæk Káragerði
8 Konráð Axel Gylfason Styrkur frá Stokkhólma Réttverk
9 Auður Stefánsdóttir Gná frá Hólateigi Vagnar og þjónusta
9 Sigurbjörn Viktorsson Kóngur frá Korpu Heimahagi
9 Brynja Pála Bjarnadóttir Héla frá Hamarsheiði 2 Fasteingasalarnir Garðar Hólm og Guðlaug Jóna
10 Jón Steinar Konráðsson Fönix frá Silfurbergi Mustad Autoline
10 Halldór P. Sigurðsson Röskur frá Varmalæk 1 Íslensk verðbréf
11 Erlendur Guðbjörnsson Stígur frá Halldórsstöðum Káragerði
11 Kristín Ingólfsdóttir Ásvar frá Hamrahóli Vagnar og þjónusta
11 Ólöf Guðmundsdóttir Tónn frá Hestasýn Garðaþjónusta Sigurjóns
12 María Júlía Rúnarsdóttir Vakandi frá Stóru-Hildisey Sveitin
12 Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Stjörnublikk
12 Anna Kristín Kristinsdóttir Greifi frá Áskoti Réttverk
13 Gunnhildur Sveinbjarnardó Elva frá Auðsholtshjáleigu Heimahagi
13 Helga Rósa Pálsdóttir Aspar frá Miklagarði Garðaþjónusta Sigurjóns
13 Gunnar Eyjólfsson Kjarkur frá Litlalandi Ásahreppi Mustad Autoline
14 Bragi Birgisson Kolgrímur frá Efri-Gegnishólum Hvolpasveitin
14 Hrefna Hallgrímsdóttir Þjóstur frá Hesti Káragerði
14 Rósa Valdimarsdóttir Kopar frá Álfhólum Réttverk
15 Kolbrún Grétarsdóttir Jaðrakan frá Hellnafelli Íslensk verðbréf
15 Ríkharður Flemming Jensen Friðrik frá Traðarlandi Heimahagi
15 Sylvía Sól Magnúsdóttir Samba frá Reykjavík Mustad Autoline
16 Ámundi Sigurðsson Maísól frá Miklagarði Garðaþjónusta Sigurjóns
16 Valdimar Ómarsson Afródíta frá Álfhólum Fasteingasalarnir Garðar Hólm og Guðlaug Jóna
16 Þórdís Sigurðardóttir Gljái frá Austurkoti Hvolpasveitin
17 Sverrir Einarsson Kraftur frá Votmúla 2 Réttverk
17 Hermann Arason Hraunar frá Vorsabæ II Vagnar og þjónusta
17 Erna Jökulsdóttir Leiknir frá Litlu-Brekku Káragerði
18 Guðmundur Ásgeir Björnsson Harpa Dama frá Gunnarsholti Sveitin
18 Edda Hrund Hinriksdóttir Flækja frá Heimahaga Heimahagi
18 Elín Hrönn Sigurðardóttir Svandís frá Aðalbóli 1 Stjörnublikk
19 Sævar Örn Eggertsson Stormfaxi frá Álfhólum Réttverk
19 Darri Gunnarsson Draumur frá Breiðstöðum Trausti fasteignasala
19 Magnús Ólason Lukka frá Eyrarbakka Hvolpasveitin

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar