FEIF Youth Camp mun fara fram á Íslandi í sumar
Á vef LH er sagt frá því að FEIF Youth Camp sumarbúðirnar verða haldnar dagana 9.-14. júlí 2025 á Hvanneyri.
FEIF Youth Camp eru sumarbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 14-17 ára á árinu. Markmið þeirra er að kynna krakka frá aðildarlöndum FEIF fyrir hestamenningu annarra þjóða, auka skilning á menningarlegum mun og að hitta ungt fólk með sama áhugamál. Sumarbúðirnar verða að þessu sinni haldnar á Íslandi.
Dagskráin verður ákaflega spennandi en meðal annars verður boðið uppá:
- Reiðtúra í fallegri náttúru
- Fyrirlestra
- Sýnikennslu
- Kynningu á Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri
- Gönguferðir
- Sund
- Og margt fleira!
Athugið að sumarbúðirnar eru alþjóðlegar og þar verður öll dagskrá á ensku, þetta er því frábært tækifæri til að efla enskuna, læra meira um hesta, kynnast nýjum krökkum og eignast nýja vini.
Umsóknarfrestur til þátttöku fyrir Íslands hönd er til 20. mars 2025 og hægt er að nálgast umsóknina með því að smella hér.
Kostnaður við búðirnar er 660 evrur en inní því er fæði, allar ferðir og afþreying. Þátttakendur þurfa að koma sér í Borgarnes á eigin kostnað.
Skrifstofa LH veitir allar nánari upplýsingar í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið joninasif@lhhestar.is.
www.lhhestar.is