Erik Anderson reiðkennari ársins hjá FEIF
Erik Andersen. Mynd: Norsk Islandshestforening
Kosning um reiðkennara ársins 2024 hjá FEIF lauk í byrjun janúar en niðurstöður voru kynntar á Aðalfundi FEIF fyrstu helgina í febrúar.
Tilnefndir voru eftirfarandi reiðkennarar en hver aðildarþjóð FEIF getur tilnefnt einn einstakling. Finnbogi Bjarnason var tilnefndur af LH eftir að hljóta nafnbótina hér heima.
- Arnella Backlund (Finnland)
- Bea Rusterholz (Sviss)
- Belinda Bonting (Holland)
- Erik Andersen (Noregur)
- Finnbogi Bjarnason (Ísland)
- Gudmundur Einarsson (Svíþjóð)
- Jana Meyer (Bandaríkin)
- Janine Heiderich (Þýskaland)
- Julie Keller (Danmörk)
Það fór svo að Erik Andersen frá Noregi er reiðkennari ársins 2024 hjá FEIF.
Erik Anderson reiðkennari ársins hjá FEIF
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar
Glæsilegur sigur hjá Þórdísi
Tækifæri til að láta röddu sína heyrast