Landsamband hestamanna Framboðsfrestur til stjórnar LH

  • 13. september 2024
  • Fréttir

Landsþing LH verður haldið í Borgarnesi 25. og 26. október. Kjörnefnd landsþings vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing, en sitjandi stjórnarfólk skal tilkynna kjörnefnd um hvort þau gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa fjórum vikum fyrir þing. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH.

Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára.

Tilkynningar um framboð skal senda til formanns nefndarinnar eða á netfangið lh@lhhestar.is. Framboðsfrestur er til miðnættis 11. október.

Kjörnefnd skipa:

Margeir Þorgeirsson, formaður (vodlarhestar@gmail.com)
Ragnhildur Loftsdóttir
Þórður Ingólfsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar