Fyrsta meistararitgerðin varin

  • 12. janúar 2026
  • Fréttir

Johannes Amplatz verður fyrsti neminn til að ljúka meistaragráðu frá hestafræðideildinni á Hólum. Mynd: Háskólinn á Hólum.

Þann 12. desember síðastliðinn varði Johannes Amplatz meistararitgerð sína frá Hestafræðideild Háskólans á Hólum.

„Þessi meistaravörn markaði tímamót við deildina þar sem Johannes verður fyrsti neminn til að ljúka meistaragráðu frá deildinni en hann mun formlega útskrifast í maí í vor,“ segir í frétt á vefsíðu Háskólans á Hólum.

Johannes kemur frá Suður-Tíról á Ítalíu og er jafnframt eini Ítalinn með BS próf í reiðmennsku og reiðkennslu frá Hestafræðideildinni. Hann hefur búið á Íslandi í fjöldamörg ár og kennir meðal annars við hestabrautina í Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Titillinn á meistararitgerð Johannesar er: Influence of rider-to-horse body weight ratio and horse conformation on competition results at the 2023 World Championships for Icelandic horses, and a survey on horses’ training and health backgrounds. Á íslensku gæti titillinn verið svohljóðandi: Áhrif af hlutfallinu milli líkamsþunga knapa og hests, og sköpulags hesta á keppnisárangur á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins 2023 og könnun á þjálfun og heilsufari hestanna.

„Góð mæting var á meistaravörnina heima á Hólum og einnig á streymi. Johannes stóð sig ljómandi vel í vörninni, stóðst hana og ritgerðina með miklum sóma.“

Prófdómari var Dr. Malin Connysson við Sænska Landbúnaðarháskólann (SLU) í Uppsala í Svíþjóð en í prófnefndinni sátu jafnframt með henni leiðbeinendur Johannesar, Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir dósent við Hestafræðideild Háskólans á Hólum og Professor Anna Jansson, SLU í Uppsala.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar