Fyrsta mótið í Blue Lagoon – Fjórgangur

  • 6. febrúar 2026
  • Fréttir
Skráning opnar 9.febrúar og lokar 15.febrúar

Blue Lagoon mótaröðin hefst miðvikudaginn 18.febrúar kl.17:30 í Samskipahöllinni. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í fjórgangi.

Eftirtaldir flokkar verða í boði;
Barnaflokkur (10-13ára), tveir flokkar í boði, minna vanir og meira vanir.
Minna vanir keppa í V5 (léttari fjórgangur) og meira vanir keppa í V2.
Unglingaflokkur (14-17ára), tveir flokkar í boði, minna vanir og meira vanir.
Minna vanir keppa í V5 (léttari fjórgangur) og meira vanir keppa í V2.
Ungmennaflokkur (18-21árs). Eingöngu einn flokkur í boði, V2.

Hér má nálgast reglur um íþróttakeppni:
(Í)Reglur_um_íþróttakeppni__270325.pdf

6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.
Knapar telja eingöngu til stiga í einum flokki.

Þeir knapar sem hafa keppt á stórmótum svo sem Landsmóti og- eða Íslandsmóti í sínum flokkum er bent á að skrá sig í V2.

ATH! Það eru takmörkuð pláss í hverjum flokkum og ekki verður bætt við fleiri plássum
Sjá hvernig skipting er
Barnaflokkur V2 = 25
Barnaflokkur V5 = 20
Unglingaflokkur V2 = 40
Unglingaflokkur V5 = 20
Ungmennaflokkur V2 = 30

Við bendum á að knapar mega eingöngu skrá 2 hesta.

Skráning opnar 9 febrúar og fer fram á www.sportfengur.com
Skráningu lýkur á miðnætti sunnudaginn 15.febrúar.
ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningafresti lýkur.
Skráningargjöld eru 4500kr.

Gaman að segja frá því að BLUE LAGOON mótaröðin verður í beinni útsendingu á EIÐFAXI TV, www.eidfaxitv.is, ókeypis í allan vetur og einnig á rásum Eiðfaxa á myndlykli Símans og myndlykli Vodafone.

Ráslistar og dagskrá verður birt mánudaginn 16.febrúar inná Horseday appinu og einnig á facebook síðu viðburðarins
Veitingasala verður opin í veislusalnum. Ef einhverjar spurningar vakna þá er tölvupóstfang okkar bluelagoonmotarodin@gmail.com, einnig verður það notað fyrir afskráningar eða breytingar fyrir mótin

Í boði verður æfingatími í allri Samskipahöllinni sunnudaginn 15.febrúar milli 18-20

Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni miðvikudaginn 18.febrúar nk.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar