Spennandi keppni framundan í Hafnarfirði
Lið Hrímnis er efst eftir eina grein í 1 deild Hringdu í hestaíþróttum Mynd: Gunnhildur Ýrr
Annað mót vetrarins í 1. deild Hringdu fer fram föstudagskvöldið 27. febrúar í reiðhöll Sörla í Hafnarfirði. Að þessu sinni er það hin krefjandi grein gæðingalist sem er á dagskrá. Remax býður gestum frítt í höllina og verður boðið upp á glæsilegt hátíðarblaðborð fyrir þá sem vilja gera sér glaðan dag.
Mótið hefst klukkan 19:00. Alls mæta 24 knapar til leiks og er ráslistinn stútfullur af gæðingum og snjöllum knöpum.
Staðan í deildinni
Eftir fyrstu greinina, fjórganginn, er mjög mjótt á munum í liðakeppninni. Lið Hrímnis leiðir með 59,5 stig, en lið Fornusanda fylgir fast á hæla þeirra með 58,5 stig.
Í einstaklingskeppninni er Þórdís Inga Pálsdóttir efst eftir sigurinn í fjórgangi, en hún sigraði þar á Móses frá Flugumýri.
Reynsla og nýir hestar
Þótt reynslan vegi þungt í gæðingalist, er alltaf rými fyrir óvænta sigra. Af þeim pörum sem komust í úrslit í fyrra mæta tvö aftur til leiks:
Snorri Dal og Gimsteinn frá Víðinesi (4. sæti í fyrra)
Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Fenrir frá Kvistum (6. sæti í fyrra)
Aðrir sterkir keppendur úr röðum efstu manna frá því í fyrra mæta með ný hross. Benedikt Ólafsson, sem hafnaði í 3. sæti í fyrra, teflir nú fram Rökkva frá Ólafshaga. Þórdís Inga Pálsdóttir mætir á Jarli frá Skúfsstöðum og Katla Sif Snorradóttir mætir til leiks eftir að hafa sýnt frábæra takta í þessari grein í Meistaradeild KS í fyrra.
Þá er einnig þar að finna knapan sem varð í þriðja sæti á síðasta keppnistímabili, Benedikt Ólafsson, hann teflir rnú fram Rökkva frá Ólafshaga en var í fyrra á Biskupi frá Ólafshaga. Þá var Þórdís Inga Pálsdóttir einnig í einu af toppsætunum í fyrra á Móses frá Flugumýri en er nú skráð til leiks á Jarli frá Skúfsstöðum. Þá gerði Katla Sif Snorradóttir vel á Sæmari frá Stafholti í þessari grein í Meistaradeild KS í fyrra og var í toppbaráttu.
Eins og allir vita að þá skiptir árangur fyrri ára ekki öllu máli þegar keppni hefst en reynsla er þó dýrmæt. Til viðbótar við þá sem stóðu sig vel í þessari grein í fyrra er vert að nefna Fredricu Fagerlund sem hefur verið einn af fremstu knöpum landsins í þessari grein á síðustu árum, hún keppir nú á Sjarmi frá Fagralundi. Þá má einnig finna pör sem hafa gert það gott í keppni í hinum ýmsu greinum líka og Helga Þór Guðjónsson og Þröst frá Kolsholti II sem urðu í 2.sæti í B-flokki á síðasta Landsmóti og Ólaf Þórisson á Fáfni frá Miðkoti sem hefur farið vel af stað á keppnisbrautinni.
Til viðbótar er að finna á ráslistanum mörg hátt dæmd hross í kynbótadómi sem eru að stíga sín fyrstu skref á keppnisbrautinni og er alltaf fróðlegt og spennandi að sjá hvernig þeim tekst til.
Ráslisti í gæðingalist
- Helgi Þór Guðjónsson Þröstur frá Kolsholti 2 Horseday
- Ólafur Þórisson Fáfnir frá Miðkoti Fornusandar
- Benedikt Ólafsson Rökkvi frá Ólafshaga Hrímnir
- Hulda Sveinbjörnsdóttir Lifri frá Lindarlundi Vindás/stóðhestaval
- Frederica Fagerlund Sjarmur frá Fagralundi Kidka/hestakofi
- Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti Sportfákar
- Ólöf Rún Guðmundsdóttir Hraundís frá Selfossi Tommy Hilfinger
- Thelma Dögg Tómasdóttir Bóel frá Húsavík Hringdu
- Þórdís Inga Pálsdóttir Jarl frá Skúfsstöðum Hrímnir
- Anna Valdimarsdóttir Ólsen frá Egilsá Horseday
- Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli Fornusandar
- Rakel Katrín Sigurhansdóttir Heiða frá Skúmsstöðum Tommy Hilfinger
- Anna Björk Ólafsdóttir Spenna frá Bæ Sportfákar
- Þorvaldur Logi Einarsson Saga frá Kálfsstöðum Kidka/hestakofi
- Hermann Arason Náttrún Ýr frá Herríðarhóli Vindás/stóðhestaval
- Reynir Örn Pálmason Agnar frá Margrétarhofi Hringdu
- Friðdóra Friðriksdóttir Hallsteinn frá Hólum Horseday
- Snorri Dal Gimsteinn frá Víðinesi 1 Sportfákar
- Sigvaldi Lárus Guðmundsson Fenrir frá Kvistum Fornusandar
- Sigrún Högna Tómasdóttir Rökkvi frá Rauðalæk Hringdu
- Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Ófeigur frá Þingnesi Tommy Hilfinger
- Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir Hrafn frá Ytri-Skógum Hrímnir
- Birna Olivia Ödqvist Hrafn frá Oddsstöðum I Vindás/stóðhestaval
- Haukur Bjarnason Losti frá Skáney Kidka/hestakofi
Spennandi keppni framundan í Hafnarfirði
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum