Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Fyrsti þáttur í þáttaröðinni „Á mótsdegi“

  • 31. janúar 2025
  • Sjónvarp Fréttir
Ásta Björk fylgir eftir Jóhönnu Margréti Snorradóttur þegar hún keppir í fjórgangskeppni Meistaradeildarinnar.

Fyrsta mótið í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum fór fram fimmtudaginn 22.janúar. Eiðfaxi TV sýnir beint frá Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum ásamt því að gefa út annað efni tengt deildinni. Í kvöld kl 20:00 kemur út fyrsti þáttur í þáttaröðinni Á mótsdegi.

Þættirnir gefa áhorfendum innsýn í það hvernig það er að vera keppandi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum, hvað felst í undirbúningi og hvernig mótsdagurinn lítur út frá sjónarhóli keppendans.

Fyrsti knapinn sem Ásta Björk Friðjónsdóttir, þáttarstjórnandi, fylgdi eftir var hún Jóhanna Margrét Snorradóttir en hún keppti á Bút frá Litla-Dal fyrir lið Hestvit/Árbakka sem vann liðakeppnina í fyrra. Hitti Ásta Jóhönnu Margréti fyrsta á Árbakka þar sem Jóhanna Margrét var að undirbúa sig fyrir kvöldið og fór síðan með henni í HorseDay höllina um kvöldið.

Ekki missa af þessum þætti og svo miklu meira til á www.eidfaxitv.is og tryggðu þér áskrift

 

Næsta keppni í Meistaradeildinni er slaktaumatölt fimmtudaginn 6. febrúar í HorseDay höllinni.

Eiðfaxi TV er aðgengilegt á vefnum, í snjallsímum, Apple TV, Android TV, Google TV og Amazon Fire TV.

Ef einhverjar spurningar vakna eða þú þarft aðstoð vegna kaupa á áskrift þá getur þú sent okkur tölvupóst á help@eidfaxitv.is. Við hvetjum þá sem ætla að tryggja sér áskrift að gera það tímanlega svo hægt sé að aðstoða fólk ef eitthvað kemur upp.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar