Gæðingur mótsins var Dama frá Hrafnagili

Hans og Dama Mynd:Sigrún Júnía
Félagsmót Freyfaxa og sameiginleg úrtaka hestamannafélagsins Freyfaxa og Blæs fyrir fjórðungsmót Austurlands sem hefst 6.júlí fór fram um síðastliðna helgi.
Veðrið lék aldeilis við fólk á svæðinu en ákvörðun var tekin á föstudeginum um að fresta byrjun mótsins frá klukkan 10 til kl 15 vegna veðurs, það stefndi í of mikinn hita. Góð ákvörðun þar sem að hitamælar fóru upp í 36 gráður á bílum á svæðinu og algjört logn var fyrriparts laugardagsins. Knapafundur var haldinn kl 15:00 og voru þar allir, mótshaldarar, knapar og dómarar sammála um að fresta enn frekar og hófst mótið svo kl 17:00 með forkeppni allra flokka en dagskrá á laugardag kláraðist rétt fyrir kl 23:00 í frábæru veðri, logni og um 20 stiga hita.
Gæðingur mótsins var valin Dama frá Hrafnagili en knapi hennar var Hans Kjerúlf og hlutu þau í einkunn 8.93 í B flokki og 8,95 í gæðingatölti og sigruðu þau þá flokka nokkuð örugglega.
Sigurvegari A flokks gæðinga var Þöll frá Strönd og knapi hennar var Guðrún Alexandra Tyggvadóttir og hlutu þær einkunnina 8,56.
Í ungmennaflokki var það Ríkey Nótt Tryggvadóttir á Tvisti frá Árgerði með einkunnina 8,36 sem sigraði.
Sigurvegari gæðingatölts barnaflokks og sigurvegari barnaflokks gæðinga var Arnfinnur Sigþórsson sem keppti fyrir hestamannafélagið Blæ. Hann sat hestinn Gorba frá Neskaupsstað og hlutu þeir einkunnina 8.37 í barnaflokki gæðinga og 8.33 í gæðingatölti. Mikil hamingja var á svæðinu með þátttöku í barnaflokki en alls voru 9 skráðir til leiks í byrjun sem er með mesta móti í mörg ár á Austurlandi og fengu að sjálfsögðu öll börn að taka þátt í úrslitum.
Sigurvegari unglingaflokks og gæðingatölts unglinga var Dalía Sif Ágústsdóttir sem keppti fyrir hestamannafélagið Geisla á hryssunni Dýfingu frá Felli með einkunnina 8,45 í gæðingatölti og einkunnina 8,39 í unglingaflokki.
Sigurvegari gæðingatölts 2.flokks var Diljá Ýr Tryggvadóttir á Skálmöld frá Rútsstöðum með einkunnina 8,42
Á úrslitadegi hefst dagurinn iðulega á polla & pæjuflokk og fá þá yngstu knaparnir að spreyta sig og er það mikið gaman og spennandi að fá að taka þátt.
Niðurstöður er hægt að sjá HÉR