Guðmar Þór sigurvegari Vesturlandsdeildar

Guðmar Þór Pétursson er sigurvegari Vesturlandsdeildar.
Í gærkvöldi fór fram síðastu keppni Vesturlandsdeildar er keppt var í tveimur greinum – tölti T1 og Skeiði í gegn um höllina. Því voru mörg stig í pottinum og allt gat gerst.

Efstu þrjú í tölti. Svandís Aitken Sævarsdóttir, Siguroddur Pétusson og Glódís Líf Gunnarsdóttir.
Í tölti T1 foru leikar þannig:
1. Svandís Aitken Sævarsdóttir á Fjöður f. Hrísakoti 7.28 – villiköttur fyrir Laxárholt
2. Siguroddur Pétursson á Sól f. Söðulsholti 7.22 – villiköttur fyrir Laugahvammur/Steinliggur
3. Glódís Líf Gunnarsdóttir á Garúnu f. Þjóðólfshaga 6.78 fyrir Laxárholt
4. Sævar Örn Eggertsson á Senjorítu f. Álfhólum 6.61 fyrir Berg
5. Guðmar Þór Pétursson á Kötu f. Korpu 6.56 fyrir Hestaland
Stigahæsta liðið í Tölti T1 var Laxárholt
Niðurstöður skeiðkeppninnar í gegn um höllina (Faxaborg) var þannig:
1. Guðmar Þór Pétursson á Friðsemd f. Kópavogi 4.39 sek. fyrir Hestaland
2. Ísólfur Ólafsson á Ögrunn f. Leirulæk 4.49 sek fyrir Hestaland
3. Ingibergur Árnason á Flótta f. Meiri-Tungu 4.55 sek. villiköttur f. Hergill/Export
4. Elvar Logi Friðriksson á Eldey f. Laugarhvammi 4.78 f. Laugahvammur/Steinliggur
5. Fredrica Fagerlund á Snæ f. Keldudal 4.78 f. Laugahvammur/Steinliggur
Stigahæsta lið skeiðkeppninnar var Hestaland
Stigahæsti einstaklingur Vesturlandsdeildarinnar 2024 var Guðmar Þór Pétursson með 30 stig. Næst og jöfn voru Fridrica Fagerlund og Haukur Bjarnason með 24 stig.
Stigahæsta lið deildarinnar var svo liðið Laugahvammur/Steinliggur með 155.5 stig og í næsta sæti var lið Laxárholts með 130.5 stig.

Liðsmenn sigurliðsins eru: Svandís Lilja Stefánsdóttir, Thelma Rut Davíðsdóttir, Elvar Logi Friðriksson, Fredrica Fagerlund, Haukur Bjarnasson og villiköttur Siguroddur Pétursson.
Myndir frá Iðunni Silju Svansdóttur