Hestaíþróttadómarar undirbúa sig

Stjórn HÍDÍ
Til stendur að halda eitt aukanámskeið í Reykjavík í febrúar fyrir þau sem ekki höfðu tök á að komast í janúar. Einnig er hafinn undirbúningur að aukinni símenntun í samstarfi við gæðingadómara, en ætlunin er að sameinast um fræðsluviðburði sem gagnast gætu dómurum í öllum greinum. Þá er einnig til skoðunar að taka upp aftur svokallaða fagfundi þar sem dómarar hittast og rýna mót saman, en þeir fundir voru orðnir fastir í sessi, en féllu niður í Covid.
Þá var aðalfundur Hestaíþróttadómarafélagsins haldinn í Reykjavík 22. janúar sl. Halldór Gunnar Victorsson var endurkjörinn formaður og í stjórn voru kjörin þau Ketill Björnsson og Ólöf Guðmundsdóttir og þeir Sigurður Kolbeinsson og Svafar Magnússon varamenn. Fyrir í stjórn eru Sigríður Pjetursdóttir og Snorri Ólason.
Þátttaka í aðalfundinum var mjög góð, en um helmingur félagsmanna tók þátt, ýmist á staðnum eða í gegnum fjarfundabúnað, m.a. erlendis frá. Líflegar umræður sköpuðust um ýmis málefni, m.a. voru flestir fundarmanna á því að sú þróun að hafa ekki ritara væri slæm, jafnvel þó dómarar geti slegið inn í tölur í snjalltæki truflar það bæði einbeitningu og dómari verður alltaf að líta niður til að skrá inn tölurnar og geti því misst af einhverju sem er í gangi á vellinum á meðan. Góður ritari er gulls ígildi heyrðist m.a. og bent á að það að rita hjá dómara sé góður undirbúningur fyrir keppni eða jafnvel framtíðar dómstörf. Dómarar vilja því hvetja mótshaldara til að útvega ritara á mót.Þá var einnig minnst á mikilvægi þess að geta skrifað athugasemdir við dóma, en eins og skráningarkerfið er uppbyggt núna er hægt að skrifa athugasemdir inn í kerfið en þær berast ekki knöpum og var fólk á því að úr því þyrfti að bæta. Einfaldar athugasemdir geta svarað mörgum spurningum og bætt upplýsingagjöf og samskipti á milli dómara og keppenda.
Heilt yfir var hugur í hópnum en rúmlega 100 manns eru starfandi íþróttadómarar á Íslandi og skiptist hópurinn í héraðs-, lands- og alþjóðlega dómara. Fjölmörg spennandi verkefni eru framundan, ýmis konar deildarkeppni um allt land, fjölmörg opin mót, landsmót, Íslandsmót og Norðurlandamót svo eitthvað sé nefnt.