Hvaða stóðhestar eiga flest afkvæmi í gæðingakeppni á Landsmóti?

  • 18. mars 2026
  • Fréttir

Álfur frá Selfossi og Erlingur Erlingsson í 4.vetra flokki stóðhesta á Landsmóti árið 2006

Álfur frá Selfossi trónir á toppnum yfir þá stóðhesta sem skilað hafa flestum gæðingum til keppni á stærsta sviðinu

Þegar byrjað er að grúska er oft erfitt að hætta. Hér á Eiðfaxa birtist grein fyrir nokkrum dögum um feður keppnishrossa, byggt á þátttökuhrossum á Íslandsmótum síðustu tveggja ára í öllum aldursflokkum. Nú er sjónum beint að keppni í gæðingahluta Landsmóta. Greinarhöfundur ákvað þá að stækka úrtakið og nota til þess síðustu þrjú Landsmót, þ.e. árin 2018, 2022 og 2024.

Notast var við sömu aðferð og í fyrri grein með því að hreinsa gögnin þannig að hvert hross kæmi fyrir eingöngu einu sinni. Ekki er um vísindalega grein að ræða og því ekki farið í þá vinnu að skoða fleiri breytur en hversu mikinn fjölda afkvæma stóðhestar eiga. Greinarhöfundur hvetur þó þá sem vilja skoða þetta nánar að velta þessum hestum fyrir sér í Worldfeng og grúska sér til gagns og gamans. Í því samhengi er t.d. vert að velta fyrir sér aldri stóðhestanna og fjölda afkvæma þeirra á tamningaaldri á þessu árabili.

Arfleið Orra frá Þúfu sterk

Alls eru þau hross sem keppt hafa í gæðingakeppni á síðustu þremur Landsmótum 1178 talsins. Þar að baki liggja fimm keppnisgreinar: barna-, unlinga-, ungmenna, B- og A-flokkur. Alls eru það 448 stóðhestar sem eru feður þessara hrossa og styður það við hversu marga frambærilega stóðhesta er að finna á Íslandi. Líkt og í fyrri grein að þá er hér að neðan birtur listi yfir þá feður sem eiga 5 eða fleiri afkvæmi í þessu gagnasafni. Yfirburði Orra frá Þúfu í Landeyjum koma bersýnilega í ljós þegar sá listi er skoðaður því að af 10 efstu hestum er að finna fjóra syni hans, þá Álf frá Selfossi, Gaum frá Auðsholtshjáleigu, Sæ frá Bakkakoti og Svein-Hervar frá Þúfu, auk þess er Hágangur frá Narfastöðum dóttur sonur Orra. Þá er höfðinginn sjálfur, Orri, sá stóðhestur sem næst flest afkvæmi á þegar listinn  er skoðaður.

Sá sem flestum hrossum hefur skilað til keppni á Landsmótum síðustu ára er Álfur frá Selfossi með alls 27 afkvæmi. Hann er undan áður nefndum Orra og hinni mögnuðu gæðingamóður Álfadísi frá Selfossi. Annar á listanum er Orri sjálfur með 21 afkvæmi og þriðji er sonur hans Gaumur frá Auðsholtshjáleigu. Hann var sá stóðhestur sem efstur stóð á samantekt um Íslandsmót 2024 og 2025 og styður þetta því við að þar sé einn farsælasti keppnishestafaðir samtímans. Fjórði á listanum er svo Hróður frá Refsstöðum með 18 afkvæmi og með jafn mörg afkvæmi koma þar á eftir Sær frá Bakkakoti og Skýr frá Skálakoti með 17 afkvæmi. Yngstur þeirra stóðhesta sem eiga 10 afkvæmi eða fleiri er Konsert frá Hofi með 13 afkvæmi, fæddur árið 2010.

Listi fyrir stóðhesta sem eiga 5 afkvæmi eða fleiri á síðustu þremur Landsmótum

Nafn Fjöldi
Álfur IS2002187662 frá Selfossi 27
Orri IS1986186055 frá Þúfu í Landeyjum 21
Gaumur IS2001187053 frá Auðsholtshjáleigu 19
Hróður IS1995135993 frá Refsstöðum 18
Sær IS1997186183 frá Bakkakoti 17
Skýr IS2007184162 frá Skálakoti 17
Stáli IS1998187002 frá Kjarri 16
Hágangur IS1997158469 frá Narfastöðum 15
Spuni IS2006187114 frá Vesturkoti 15
Sveinn-Hervar IS1994184553 frá Þúfu í Landeyjum 15
Ómur IS2003181962 frá Kvistum 14
Arion IS2007186189 frá Eystra-Fróðholti 13
Framherji IS2007186651 frá Flagbjarnarholti 13
Hringur IS2009167169 frá Gunnarsstöðum I 13
Konsert IS2010156107 frá Hofi 13
Trymbill IS2005135936 frá Stóra-Ási 13
Loki IS2004182712 frá Selfossi 12
Þristur IS1998186906 frá Feti 12
Hreyfill IS2008187983 frá Vorsabæ II 11
Þóroddur IS1999188801 frá Þóroddsstöðum 11
Arður IS2001137637 frá Brautarholti 10
Hrannar IS2006158620 frá Flugumýri II 10
Kappi IS2004165890 frá Kommu 10
Kjerúlf IS2003176452 frá Kollaleiru 10
Adam IS1993186930 frá Ásmundarstöðum 9
Eldur IS2007166206 frá Torfunesi 9
Jarl IS2007186992 frá Árbæjarhjáleigu II 9
Krákur IS2002187812 frá Blesastöðum 1A 9
Sjóður IS2007186104 frá Kirkjubæ 9
Toppur IS2007187018 frá Auðsholtshjáleigu 9
Vilmundur IS2001186915 frá Feti 9
Kiljan IS2004156286 frá Steinnesi 8
Kvistur IS2003156956 frá Skagaströnd 8
Lord IS2007158510 frá Vatnsleysu 8
Rökkvi IS1997186541 frá Hárlaugsstöðum 8
Hófur IS2003157800 frá Varmalæk 7
Pistill IS2007165003 frá Litlu-Brekku 7
Smári IS1993156910 frá Skagaströnd 7
Viti IS2007156418 frá Kagaðarhóli 7
Ágústínus IS2002135450 frá Melaleiti 6
Álffinnur IS2007187660 frá Syðri-Gegnishólum 6
Arion IS2007186189 frá Eystra-Fróðholti 6
Auður IS2002136409 frá Lundum II 6
Dugur IS2003184557 frá Þúfu í Landeyjum 6
Dynur IS1994184184 frá Hvammi 6
Glampi IS1989158501 frá Vatnsleysu 6
Glóðafeykir IS2003182454 frá Halakoti 6
Gustur IS1988165895 frá Hóli 6
Herkúles IS2010182570 frá Ragnheiðarstöðum 6
Hrímnir IS2005165247 frá Ósi 6
Huginn IS1994166620 frá Haga I 6
Klerkur IS2003177188 frá Bjarnanesi 6
Leiknir IS1999181675 frá Vakurstöðum 6
Markús IS1993187449 frá Langholtsparti 6
Ölnir IS2009135006 frá Akranesi 6
Rammi IS2001165222 frá Búlandi 6
Andvari IS1990184730 frá Ey I 5
Dynur IS1994184184 frá Hvammi 5
Frakkur IS2004187401 frá Langholti 5
Geisli IS1996181791 frá Sælukoti 5
Glymur IS2003125041 frá Flekkudal 5
Grunur IS1996186060 frá Oddhóli 5
Kjarni IS2000181814 frá Þjóðólfshaga 1 5
Korgur IS2006187026 frá Ingólfshvoli 5
Lexus IS2009158510 frá Vatnsleysu 5
Mídas IS2003186295 frá Kaldbak 5
Organisti IS2010177270 frá Horni I 5
Óskasteinn IS2005157994 frá Íbishóli 5
Sædynur IS2002155490 frá Múla 5
Straumur IS2008186917 frá Feti 5
Tindur IS1999157802 frá Varmalæk 5

Rétt er að taka fram að samantekt þessi er til gamans gerð og með fyrirvara um mannleg mistök við vinnslu og hreinsun gagnanna. Ekki er útilokað að tími gefist til að kafa nánar í þessi mál og skoða feður hrossa í einstökum greinum næst, þar væri t.d. fróðlegt að velta fyrir sér feðrum keppnishrossa í skeiðgreinum.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar