Íslenski hesturinn svarar tölvupósti ferðamanna

Hekla frá Þorkelshóli að svara tölvupósti. Mynd: Skjáskot af vef Íslandsstofu
Íslenski hesturinn mun í sumar svara tölvupóstum fyrir ferðamenn á meðan þeir njóta lífsins í fríi á Íslandi. Þjónustan kallast Úthestaðu póstinum þínum (e. OutHorse your email) og snýst um að bjóða ferðamönnum að útvista (e. outsource) svörun tölvupósta til íslenskra hesta. Íslandsstofa hefur hrint af stað nýrri markaðsherferð þar sem íslenski hesturinn er í aðalhlutverki og er þessi þjónusta hluti af nýju herferðinni.
Íslandsstofa lét framkvæma alþjóðlega könnun og í henni kemur fram að 55% aðspurðra skoða vinnupóstinn sinn einu sinni eða oftar á dag á meðan þau eru í fríi, einungis 44% svarenda sögðust koma heim úthvíld eftir fríið og 60% svarenda sögðu að þeim þætti sem yfirmenn, samstarfsmenn og viðskiptavinir ætluðust til þess að fá svar frá þeim meðan á fríi stæði „Í nýrri herferð fyrir áfangastaðinn Ísland er reynt að stemma stigu við þessari þróun og endurheimta sumarfríið sem raunverulegan griðartíma frá vinnu.“ segir á vef Íslandsstofu en herferðin er hluti af markaðsverkefninu Ísland saman í sókn.
„Við þekkjum öll hvernig heimavinna á Covid-tímum hefur afmáð skýr skil á milli einkalífsins og vinnunnar. Við sjáum líka í könnunum að fólk þráir að fara í frí þar sem það getur komist í raunverulega pásu,“ segir Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. „Við viljum vekja athygli á því að fólk á rétt á að vera í fríi í fríinu sínu, og jafnframt koma á framfæri sterkum skilaboðum um hvað Ísland er einstakur áfangastaður með því að tala beint til þessa stóra hóps ferðamanna sem vill komast í raunverulegt frí.“
Auglýsingin sem fylgir herferðinni er hægt að sjá hér að neðan en þar eru hestarnir Hrímnir frá Hvammi, Litla Stjarna frá Hvítárhóli og Hekla frá Þorkelshóli að svara tölvupóstum á mjög stóru lyklaborði. Leikstjórn var í höndum Reynis Lyngdals, Veigar Margeirsson samdi tónlist og Ólafur Darri Ólafsson sá um lestur.
Hér má skoða vefsíðu OutHorse en þar er hægt að kynna sér verkefnið betur og velja hest til að skrifa fyrir sig tölvupóst en hestarnir hafa ólíka tækni við að skrifa tölvupósta eins og sjá má hér fyrir neðan.

Hestarnir Litla Stjarna, Hrímnir og Hekla hafa öll sína eigin tækni við það að svara tölvupósti. Mynd: Skjáskot af vef OutHorse
Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá hvernig þessi hugmynd varð til og gerð auglýsingarinnar.