Jarl frá Árbæjarhjáleigu II í Árbæjarhjáleigu II í sumar

Jarl hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti hestamanna 2022. Jarl hefur einstakt geðslag og hefur sannað það að hann gefur þann frábæra eiginleika yfir til afkvæma sinna. Afkvæmin eiga það sammerkt að vera taugasterk, ganggóð, hágeng og einstaklega skemmtileg í allri meðhöndlun og þjálfun.
Jarl hlaut í kynbótadóm 8.78 í aðaleinkunn. Byggingareinkunn hans er 8.50 (9 fótagerð, 9 hófar og 9.5 prúðleiki) og hæfileikaeinkunn er 8.96 (9.5 skeið, 9.5 vilji og geðslag, 9 tölt og 9 fegurð í reið).
Jarl hefur verið að skila afkvæmum til kynbótadóms og á keppnisbrautina.
Verð fyrir fylfulla hryssu er 200.000kr með öllu (VSK, girðingargjald og 1x sónarskoðun)
Hægt er að panta undir Jarl með tölvupósti á heklak@gmail.com eða í síma 8646958 (Marjolijn).
