Jói Skúla og Evert efstir í fjórgangi

Jói Skúla og Evert Ljósmynd: Ulrich Neddens/Eyja.net
Fyrsta keppnisdeginum á íþróttamótinu í Kronshof í Þýskalandi er nú lokið. Eins og sagt var frá á vef Eiðfaxa fyrr í vikunni að þá er um mjög fjölmennt mót að ræða þar sem mörg sterk pör koma fram. Sýnt err beint frá mótinu og hægt að tryggja sér aðgang að útsendingunni með því að smella hér.
Forkeppni fór fram í hinum ýmsu greinum í dag auk keppni í gæðingaskeiði. Þar ber hæst forkeppni í fjórgangi fullorðinna V1 þar sem Jóhann Rúnar Skúlason og Evert frá Slippen leiða með þónokkrum yfirburðum 7,63 í einkunn en í öðru sæti er Susanne Birgisson á Krónu von der Hartmühle með 7,33 í einkunn. Frauke Schenzel er í þriðja sæti á Lýdíu frá Eystri-Hól með 7,20 í einkunn. Hér er hægt er að fylgjast með niðurstöðum frá mótinu og dagskrá þess.
Eins og áður segir var einnig keppt í gæðingaskeiði og þar náði Laura Enderes frábærum árangri á Fannari von der Elschenau með einkunnina 8,71 og unnu þau með nokkrum yfirburðum. Alexander Fedorov á Tign frá Hrafnagili urðu í öðru sæti með 8,00 og Beggi Eggertsson varð í því þriðja á Dynfara frá Steinnesi með 7,67 í einkunn.
Efstu knapar í fjórgangi
Sæti | Knapi | Hestur | Einkunn |
1 | Jóhann Rúnar Skúlason | Evert fra Slippen | 7.63 |
2 | Susanne Birgisson | Króna von der Hartmühle | 7.33 |
3 | Frauke Schenzel | Lýdía frá Eystri-Hól | 7.20 |
4.1 | Lena Maxheimer | Tvistur frá Kjarna | 7.13 |
4.1 | Silke Feuchthofen | Fagur vom Almetal | 7.13 |
4.2 | Josefin Þorgeirsson | Galsi vom Maischeiderland | 7.13 |
7.1 | Susanne Birgisson | Kári von der Hartmühle | 7.10 |
7.2 | Irene Reber | Dáð frá Tjaldhólum | 7.10 |
7.3 | Beeke Köpke | Múli frá Bergi | 7.10 |
7.3 | Johanna Beuk | Mía frá Flagbjarnarholti | 7.10 |
7.4 | Stefan Schenzel | Mökkur frá Flagbjarnarholti | 7.10 |
12 | Jonas Hassel | Snillingur vom Birkenhof | 7.07 |
13 | Josje Bahl | Alsvinnur vom Wiesenhof | 7.03 |
14 | Karly Zingsheim | Oscar vom Forstwald | 7.00 |
15 | Laura Midtgård Hansen | Gimsteinn frá Íbishóli | 6.93 |
Efstu knapar í gæðingaskeiði
sæti | Knapi | Hestur | einkunn |
1 | Laura Enderes | Fannar von der Elschenau | 8,71 |
2 | Alexander Fedorov | Tign frá Hrafnagili | 8,00 |
3 | Beggi Eggertsson | Dynfari frá Steinnesi | 7,67 |
4 | Beggi Eggertsson | Tangó frá Litla-Garði | 7,54 |
5 | Vicky Eggertsson | Ylfa frá Miðengi | 7,50 |
6 | Simon Pape | Gleði fra Egholm | 6,96 |
7 | Patricia Grolig | Svikahrappur frá Borgarnesi | 6,92 |
8 | Clara Friedrich | Hausti frá Kagaðarhóli | 6,71 |
8 | Styrmir Árnason | Cortes frá Ármóti | 6,71 |
8 | Ladina Sigurbjörnsson-Foppa | Þokkadís frá Eystra-Fróðholti | 6,71 |