Hestamannafélagið Sleipnir Jón og Halldóra leiða eftir forkeppni

  • 25. júní 2025
  • Fréttir

Halldóra og Jón Ársæll í keppni á Íslandsmótinu Ljósmynd: Emilia Staffansdotter

Niðurstöður úr forkeppni í fjórgangi í ungmennaflokki á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna

Það hefur varla stytt upp í dag á Selfossi en knapar og hross virðast láta það ekkert á sig fá.

Forkeppni er lokið í fjórgangi í ungmennaflokki og þar standa efst Jón Ársæll Bergmann á Halldóru frá Hólaborg með 7,37 í einkunn. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal er annar á Gretti frá Hólum með 7,17 og þriðja er Védís Huld Sigurðardóttir á Ísaki frá Þjórsárbakka með 7,13 í einkunn.

Hér fyrir neðan eru niðurstöðurnar úr forkeppninni

Betur verður farið yfir keppni dagsins á EiðfaxaTV í kvöld í Uppgjörsþætti Arnars Bjarka en hægt er að horfa á allt mótið í beinni á EiðfaxaTV. Við mælum með líka að allir næli sér í nýjustu uppfærslu af HorseDay appinu en þar eru allar helstu upplýsingar um mótið ásamt skemmtilegri nýjung sem gerð er í samstarfi við okkur hjá Eiðfaxa og Oddur Ólafsson framkvæmdastjóri HorseDay kynnir betur í uppgjörsþættinum í kvöld.

Næst á dagskrá er fjórgangur V1 í ungmennaflokki

Ungmennaflokkur – Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jón Ársæll Bergmann Halldóra frá Hólaborg 7,37
2 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum 7,17
3 Védís Huld Sigurðardóttir Ísak frá Þjórsárbakka 7,13
4 Ragnar Snær Viðarsson Stimpill frá Strandarhöfði 7,07
5 Jón Ársæll Bergmann Bassi frá Grund II 7,00
6 Hekla Rán Hannesdóttir Ísberg frá Hákoti 6,90
7-9 Eva Kærnested Styrkur frá Skák 6,87
7-9 Steinunn Lilja Guðnadóttir Assa frá Þúfu í Landeyjum 6,87
7-9 Hekla Rán Hannesdóttir Grímur frá Skógarási 6,87
10 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Muninn frá Bergi 6,83
11 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 6,77
12-14 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Draupnir frá Dimmuborg 6,73
12-14 Guðný Dís Jónsdóttir Hraunar frá Vorsabæ II 6,73
12-14 Matthías Sigurðsson Fákur frá Kaldbak 6,73
15 Eik Elvarsdóttir Blær frá Prestsbakka 6,67
16 Þórey Þula Helgadóttir Hrafna frá Hvammi I 6,60
17-18 Emma Thorlacius Halastjarna frá Forsæti 6,57
17-18 Signý Sól Snorradóttir Bárður frá Litla-Dal 6,57
19-20 Þórgunnur Þórarinsdóttir Rut frá Hestkletti 6,53
19-20 Guðný Dís Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 6,53
21-22 Sigurbjörg Helgadóttir Sólon frá Sælukoti 6,43
21-22 Lilja Dögg Ágústsdóttir Tenór frá Litlu-Sandvík 6,43
23 Snæfríður Ásta Jónasdóttir Feykir frá Strandarhöfði 6,37
24-25 Sigurður Steingrímsson Rún frá Koltursey 6,30
24-25 Svandís Aitken Sævarsdóttir Huld frá Arabæ 6,30
26 Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 6,27
27 Þórey Þula Helgadóttir Vörður frá Hvammi I 6,17
28 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 6,13

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar