Landsmótssvæðið á Hólum tekur á sig mynd

Frá steningarhátíð Landsmóts á Hólum 2016
Landsmót hestamanna fer fram á Hólum í Hjaltadal næstkomandi sumar nánar tiltekið dagana 5.-12. júlí. Í frétt frá mótshöldurum kemur nú fram að svæðið allt sé að taka á sig mynd og öllu til kostað við að undirbúa svæðið á sem bestan hátt.
Framkvæmdir á stórmóta- og kennslusvæðinu á Hólum í Hjaltadal eru nú í fullum gangi, tæpu ári áður en Landsmót hestamanna verður sett þar í júlí 2026. Aðalvöllurinn á svæðinu hefur þegar fengið andlitslyftingu og búið er að leggja nýtt efni á allar keppnisbrautir. Á næstu vikum verður upphitunarvöllur stækkaður og endurbyggður, útbúin verður ný ferjuleið frá honum yfir á aðalvöll og lagt verður nýtt efni á kynbótabraut. Að þessu loknu verður keppnissvæðið á Hólum í toppstandi, klárt fyrir kennslu hestafræðideildar á svæðinu í vetur og Landsmót næsta sumar.
Ýmsar aðrar lagfæringar eru ráðgerðar á svæðinu til að allt verði sem glæsilegast þegar Landsmót gekk í garð. Svæðið sannaði sig sem frábært mótssvæði á Landsmóti á Hólum 2016, húsakostur er frábær, tjaldsvæði næg og dalurinn myndar fallega umgjörð utan um mótið.
Miðað við mynd sem fylgir fréttinni mætti ætla að Landsmót hefjist nú eftir helgi en ástæða þess er sú að nú fara þar fram upptökur á sjónvarpsseríunni Bless, bless blesi. Serían gerist m.a. á Landsmóti hestamanna og því hefur verið lögð mikil vinna í að endurgera aðstæður á mótssvæðinu eins og kostur er líkt og meðfylgjandi mynd að neðan sýnir.

Engu er líkara en landsmót hefjist á morgun á Hólum. Ljósmynd: vefsíða landsmóts