Laura og Fannar í níu í gæðingaskeiði

Laura Enderes og Fannar von der Elschenau Mynd: Eyja.net
Mótið er eitt af þeim mótum þar sem knapar geta unnið sér inn þátttökurétt á Heimsmeistaramótinu í Sviss í ágúst. Í gærkvöldi fór fram keppni í gæðingaskeiði þar sem Laura Enderes og Fannar von der Elschenau unnu með 9,00 í einkunn en aldrei áður hefur knapi farið í níu í gæðingaskeiði á þýskri grund.
Í öðru sæti varð Ladina Sigurbjörnsson-Foppa á Styrlu fra Skarstad með 8,46 og í þriðja Beggi Eggertsson á Dynfara frá Steinnesi með 8,29 í einkunn.
Forkeppni lauk einnig í fjórgangi þar sem þær eru jafnar á toppnum Josefin Þorgeirsson á Galsa vom Maischeiderland og Anne Stine Haugen á Hæmi frá Hyldsbæk með 7,73 í einkunn. Jóhann Rúnar Skúlason og Evert fra Slippen eru þriðju með 7,67 í einkunn.
Hægt er að fylgjast með mótinu í beinni á Eyja TV en ráslista og dagskrá er hægt að sjá HÉR. Í dag fer m.a. fram keppni í fimmgangi og tölti en efst sem stendur eru þau Frauke Schenzel og Óðinn vom Habichtswald með 7,60 í einkunn í fimmgangi og Anna-Lisa Zingsheim og Glaður frá Kálfhóli 2 í tölti með 8,07.
Margir áhugaverðir hestar eru á ráslitanum m.a. er Jóhann Skúlason og Evert fra Slippen meðal keppanda en þeir eru t.d. í seinni blokkinni í töltinu á eftir kl. 13:20.
Kronshof-Special 2025 – V1 Fjórgangur – Efstu 10
1.1 Josefin Þorgeirsson Galsi vom Maischeiderland 7.73
1.2 Anne Stine Haugen Hæmir fra Hyldsbæk 7.73
3 Jóhann Rúnar Skúlason Evert fra Slippen 7.67
4 Jolly Schrenk Aris von den Ruhrhöhen 7.57
5 Lena Maxheimer Tvistur frá Kjarna 7.50
6 Anna-Lisa Zingsheim Glaður frá Kálfhóli 2 7.47
7.1 Susanne Birgisson Kári von der Hartmühle 7.33
7.1 Frauke Schenzel Lýdía frá Eystri-Hól 7.33
7.2 Daniel Rechten Óskar från Lindeberg 7.33
10.1 Vicky Eggertsson Tristan frá Stekkhólum 7.30
10.2 Sophie Neuhaus Fylkir vom Wotanshof 7.30
Kronshof-Special 2025 – PP1 Gæðingaskeið
1.00. Laura Enderes – Fannar von der Elschenau – 9,00
2.00. Ladina Sigurbjörnsson-Foppa – Styrla fra Skarstad – 8,46
3.00. Beggi Eggertsson – Dynfari frá Steinnesi – 8,29
4.00. Alexander Fedorov – Tign frá Hrafnagili – 8,17
5.00. Viktoria Große – Besti frá Upphafi – 7,83
6.00. Viktoria Große – Gimli vom Sperlinghof – 7,79
7.00. Celina Probst – Mjölnir vom Lipperthof – 7,67
8.00. Antonia Mehlitz – Hlökk frá Litla-Garði – 7,54
9.00. Gerrit Venebrügge – Prins Valíant von Godemoor – 7,38
10.00. Simon Pape – Gleði fra Egholm – 7,33
11.00. Siggi Narfi Birgisson – Sneis frá Ytra-Dalsgerði – 7,21
12.10. Vicky Eggertsson – Ylfa frá Miðengi – 7,13
12.10. Marion Duintjer – Salka frá Litlu-Brekku – 7,13
14.00. Ronja Marie Müller – Gulltoppur frá Stað – 6,75
15.00. Malin Skupch – Neisti vom Kronshof – 6,71
16.00. Isabelle Füchtenschnieder – Sjón frá Garðshorni á Þelamörk – 6,33
17.00. Vivien Sigmundsson – Eldur vom Ruppiner Hof – 6,17
18.00. Isabelle Füchtenschnieder – Tangó vom Mönchhof – 6,13
19.00. Susanne Larsen Murphy – Völsungur frá Skeiðvöllum – 5,96
20.00. Sylvia Hemme – Tónn frá Steinnesi – 5,54
21.00. Karly Zingsheim – Viktor frá Skör – 5,50
22.00. Katharina Müller – Nona vom Heesberg – 4,67
23.00. Vivien Sigmundsson – Kistill frá Ytra-Vallholti – 4,17
24.00. Sina Scholz – Nói frá Saurbæ – 4,13
25.00. Inken Lüdemann – Hvirfill von Ögn – 4,08
26.00. Beggi Eggertsson – Tandri frá Árgerði – 4,00
27.10. Sara Boehart – Sparta vom Axenberg – 3,17
27.10. Kimberly Strohmann – Bliki frá Stóra-Vatnsskarði – 3,17
29.00. Julia Hehlert-Friedrich – Urð frá Skriðu – 2,58
30.00. Steve Köster – Fákur frá Syðri-Reykjum – 1,88
31.00. Janne Meßer – Gáski frá Höfðaborg – 1,04
32.10. Steve Köster – Símon frá Efri-Rauðalæk – 0,00