Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Liðakynning 3 – Áhugamannadeild Equsana 2022

  • 27. desember 2021
  • Fréttir

Þá er komið að næstu þremur liðum sem við kynnum til leiks sem munu taka þátt í Equsana deildinni á komandi tímabili, sem hefst 3. febrúar nk.

Í þessari annarri kynningu kynnum við lið Smiðjunnar Brugghús, Hvolpasveitarinnar og Fleygs/Hrísdalshesta.

 

Lið Smiðjunnar Brugghús: Smiðjan Brugghús er bruggpöbb/brugghús sem Sveinn Sigurðsson, Þórey Richardt Úlfarsdóttir, Vigfús Þór Hróbjartsson og Vigfús Páll Auðbertsson stofnuðu árið 2018 í Vík Íslandi. Öll höfðu þau ástríðu til að búa til frábæra bjóra og mat og láta eitthvað skemmtilegt gerast í fallega bænum Vík. Brugghúsið var opnað 2018 í Vík og bruggun hófst hjá þeim Janúar 2019. Annar staður var svo opnaður á Selfossi í Júlí 2021.

 

Liðsmenn eru:

Valdimar Ómarsson

Aldur: 39 ára

Hestamannafélag: Sprettur

Starfsgrein: Forstöðumaður þróunar

 

Magnús Ingi Másson

Aldur: 48 ára

Hestamannafélag: Hörður

Starfsgrein: Blikksmiður

 

Kristinn Már Sveinsson

Aldur: 57 ára

Hestamannafélag: Hörður

Starfsgrein: Framleiðslustjóri

 

Jón Ó. Guðmundsson

Aldur: 50 ára

Hestamannafélag: Sprettur

Starfsgrein: Matreiðslumaður

 

Garðar Hólm

Aldur: 42 ára

Hestamannafélag: Sprettur

Starfsgrein: Fasteignasali

 

Þjálfari: Fredrica Fagerlund, hestamannafélaginu Herði.

 

Lið Hvolpasveitarinnar: Lið Hvolpasveitarinnar samanstendur af síkátum sunnlendingum sem taka sig ekki of hátíðlega, markmið vetrarins er að gera betur en í fyrra með bros á vör.

 

Liðsmenn eru:

Bragi Birgisson

Aldur: 55 ára

Hestamannafélag: Sleipnir

Starfsgrein: Bóndi

 

Eyrún Jónasdóttir

Aldur: 53 ára

Hestamannafélag: Geysir

Starfsgrein: Tónlistarkennari og kórstjóri

 

Magnús Ólason

Aldur: 57 ára

Hestamannafélag: Sleipnir

Starfsgrein: Tæknifræðingur

 

Soffía Sveinsdóttir

Aldur: 43 ára

Hestamannafélag: Sleipnir

Starfsgrein: IB stallari

 

Þórdís Sigurðardóttir

Aldur: 45 ára

Hestamannafélag: Sleipnir

Starfsgrein: Lífeindafræðingur

 

Þjálfari: Páll Bragi Hólmarsson, hestamannafélaginu Sleipnir.

 

Lið Fleygs/Hrísdalshesta:

Liðsmenn eru:

Páll Bjarki Pálsson:

Aldur:  62 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Bílstjóri

 

Gunnar Sturluson:

Aldur: 54 ára

Hestamannafélag: Snæfellingur

Starfgrein: Hæstaréttarlögmaður og hrossabóndi

 

Bergur Barðason:

Aldur:  55 ára

Hestamannafélag:  Fákur

Starfgrein:  Hagfræðingur

 

Guðmundur Jónsson

Aldur:  54 ára

Hestamannafélag:  Fákur

Starfgrein: Smiður

 

Sigurbjörn Jakob Þórmundsson:

Aldur: 56 ára

Hestamannafélag:  Fákur

Starfgrein: Stálsmiður

 

Þjálfari: Þorvaldur Árni Þorvaldsson, hestamannafélaginu Sprettur

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar