Nýtt kynbótamat

  • 6. júní 2025
  • Fréttir
Nýtt kynbótamat hefur verið vistað í WorldFeng og er þar keppnisárangur hrossa nýttur í fyrsta skipti í kynbótamati fyrir íslensk hross.

Fram til þessa hefur kynbótamatið byggt eingöngu á kynbótadómum en framvegis mun það byggja bæði á þeim og keppnisárangri hrossa í völdum flokkum íþrótta- og gæðingakeppni.

Hér fyrir neðan eru helstu punktar en nánari skýringar eru í textanum sem fylgir:

  • Keppnisgögn úr íþróttakeppni og gæðingakeppni verða notuð í kynbótamatinu ásamt kynbótadómum.
  • Dómar úr eftirfarandi keppnisgreinum verða nýttir:
    • Töltgreinum (T1, T3, T2 og T4),
    • Fjórgangsgreinum (V1, V2 og B-flokki),
    • Fimmgangsgreinum (F1, F2 og A-flokki) og
    • Skeiðgreinum (250 metra skeiði, 100 metra skeiði og gæðingaskeiði).
  • Keppnisárangur hrossa á alþjóðlegum mótum (e. World ranking) í fullorðinsflokki (meistaraflokki og 1.flokki), stórmótum í gæðingakeppni auk skeiðgreina verða nýtt.
  • Erfðafylgni á milli álíkra greina, eins og T1 og T2 og fjórgangs og B-flokks, er afar há og eru greinarnar því sameinaðar í ofangreinda fjóra keppniseiginleika.
  • Það að bæta keppnisgögnum við útreikning á kynbótamati eykur öryggi kynbótamatsins og gerir okkur kleift að birta kynbótamat fyrir árangur í keppni.
  • Því umfangsmeiri gögn = því meira öryggi kynbótamatsins.
    Öryggi nýju keppniseiginleikanna verður birt en ávallt þarf að hafa í huga að nýta sér kynbótamatið með hliðsjón af öryggi matsins.
  • Arfgengi keppniseiginleikanna er á bilinu 27-29% og erfðafylgni þeirra við tengda eiginleika í kynbótadómi er afar há.
  • Arfgengi keppniseiginleika er lægra en arfgengi kynbótadóma sem er um 40% og er því mestur þungi á upplýsingar úr kynbótadómi við mat á kynbótamati.
  • Kynbótadómur er afar gott spágildi fyrir keppnisárangur og segir okkur mikið um mögulega nýtingu sýndra hrossa við ræktun keppnishrossa.

Nánari upplýsingar um þessa nýjung má finna inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnarins, rml.is.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar