Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Hljóti knapi 2 gul spjöld eða fleiri í skeiðgreinum verður tími þeirra ógildur
Fulltrúaþing FEIF var haldið um síðustu helgi þar sem ákvarðanir voru teknar m.a. um nýtt spjaldakerfi í keppni og byggingardómar kynbótahrossa voru gerðir valfrjálsir eftir fimm vetra aldur.
Kosið var í nokkrar lykilstöður innan samtakanna. Þar má helst nefna að Lena Johanna Reiher var kjörin ræktunarleiðtogi FEIF. Inge Kringeland, sem sinnt hefur þeirri stöðu til fjölda ára, bauð sig ekki fram til endurkjörs.
Fimm litir af spjöldum
Ein stærsta breytingin sem samþykkt var lýtur að agaviðurlögum í íþróttakeppnum. Tekið verður upp nýtt kerfi með fimm mismunandi litum af spjöldum sem hvert og eitt hefur sína merkingu.
- Gult spjald: Viðvörun vegna minni háttar brota eða óprúðmannlegrar framkomu.
- Rautt spjald: Alvarleg viðvörun sem getur leitt til brottvísunar úr keppni
- Blátt spjald (Heilbrigðisspjald): Notað ef dómari grunar að hestur sé ekki í keppnishæfu ástandi, t.d. vegna helti eða blóðs.
- Grátt spjald: Gefið fyrir ógilda sýningu, t.d. ef knapi ríður ranga leið eða missir stjórn á hesti.
- Hvítt spjald: Notað af dómara til að óska eftir fundi með yfirdómara.
Sérstök athygli er vakin á því að gul og rauð spjöld fylgja knapanum út almanaksárið og geta mörg spjöld leitt til sjálfkrafa keppnisbanns.
Skeiðgreinar
Nýjar reglur voru teknar upp er varða keppni í skeiðgreinum og tengjast m.a. refsingu sem hlýst af spjaldanotkun.
- Tímahegning: Ef knapi fær gult spjald í skeiðgrein bætast 0,5 sekúndur við tímann í 100 metra skeiði. Í greinum yfir 100 metrum (250m skeið og 150 metra skeið) bætast 1,25 sekúndur við tímann.
- Brottvísun: Ef knapi hlýtur tvö gul spjald í sömu umferð (frá tveimur eða fleiri dómurum) er hann útilokaður frá þeirri umferð og fær engan gildan tíma.
Samþykkt var að stytta tímann sem knapar hafa til að koma hestum sínum í rásbox í kappreiðaskeiði úr tveimur mínútum niður í eina. Markmiðið er að lágmarka streitu fyrir þá hesta sem þegar eru komnir í boxin og bíða eftir keppinautnum.
Önnur athyglisverð breyting í skeiði er sú að grænum fánum verður skipt út fyrir hvíta fána. Þetta er gert til að koma til móts við litblinda dómara og starfsmenn, þar sem rauður og grænn litur eiga það til að ruglast saman.
Aðrar mikilvægar samþykktir
- Samþykkt var að vísa slóvenska landssambandinu DRIKS úr FEIF vegna vanskila gjalda og samskiptaleysis.
- Örmerki: Nú er gerð skýr krafa um að allir keppnishestar séu örmerktir til að staðfesta auðkenni þeirra.
- Sveigjanleiki í ræktun: Eigendur 5 vetra hesta og eldri geta nú nýtt byggingardóm frá fyrri sýningum og aðeins sýnt hestinn í hæfileikadóm.
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Dregið í rásröð í Meistaradeild Líflands