„Roði er alltaf góður“

Myndir: Marta Gunnarsdóttir
A úrslitum í gæðingatölti í barnaflokki í boði Snilldarverks voru að klárast og voru það þau Kristín Rut Jónsdóttir og Roði frá Margrétarhofi sem stóðu uppi sem sigurvegarar.
„Mjög góð tilfinning. Þetta var markmiðið okkar en Roði er alltaf góður,“ segir Kristín Rut en þau Roði hafa verið að keppa saman í eitt ár núna og stefna á að mæta á Landsmót saman á næsta ári.
Í öðru sæti varð Eyvör Vaka Guðmundsdóttir á Dívu frá Bakkakoti og í því þriðja Svala Björk Hlynsdóttir á Selmu frá Auðsholtshjáleigu.
Hægt er að horfa á mótið í beinni á Alendis.is eða inn á Facebooksíðu mótsins

Niðurstöður – Gæðingatölt – A úrslit
1 Kristín Rut Jónsdóttir / Roði frá Margrétarhofi 8,64
2 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir / Díva frá Bakkakoti 8,63
3 Svala Björk Hlynsdóttir / Selma frá Auðsholtshjáleigu 8,49
4 Álfheiður Þóra Ágústsdóttir / Auður frá Vestra-Fíflholti 8,49
5 Ari Osterhammer Gunnarsson / Sprettur frá Brimilsvöllum 8,40
6 Fríða Hildur Steinarsdóttir / Silfurtoppur frá Kópavogi 8,39
7 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Gustur frá Efri-Þverá 8,35
8 Aron Einar Ólafsson / Hugrún frá Syðra-Garðshorni 8,34