Kynbótasýningar Röðun hrossa á Rangárbökkum 26. til 28. maí

  • 23. maí 2025
  • Fréttir
Röðun hrossa fyrir fyrstu kynbótasýningu vorsins á Rangárbökkum hefur verið birt á heimasíðu RML.

Skráningar á vorsýningar ganga vel og eru nú þegar 4 af 9 sýningum fullar. Enn er þó nóg eftir af plássum og skráningarfrestur er til lok dags í dag 23. maí.

Á fyrstu sýninguna á Rangárbökkum, vikuna 26. til 28. maí eru 60 hross skráð. Dæmt verður frá kl. 8:00 til 19:30. Til að tímasetningar standist sem best biðjum við sýnendur og eigendur um að mæta tímanlega. Mælingar hefjast kl. 7:50 og þá þurfa hross að vera mætt og tilbúin í mælingu, þannig að dómstörf geti hafist kl. 8:00. Sama á við um hollið eftir hádegið, dómar hefjast kl. 12:30 og þá þurfa hross að vera mætt í mælingu kl. 12:20 og fyrstu hross eftir kaffið þurfa að vera mætt 15:50. Vinsamlega mætið tímanlega kæru sýnendur því það kemur sér vel fyrir alla aðila. Ef hross detta út með skömmum fyrirvara er gott að sýningastjóri sé látinn vita, mögulega er þá hægt að færa til hross úr öðrum hollum svo ekki myndist eyður.

Röðun hrossa fyrir fyrstu kynbótasýningu vorsins á Rangárbökkum hefur verið birt á heimasíðu RML. Eins og þegar hefur komið fram hefjast dómar stundvíslega mánudaginn 26. maí kl. 8:00 (mælingar 7:50) og sýningunni lýkur með yfirlitssýningu miðvikudaginn 28. maí.

Sjá nánar:
Röðun hrossa á kynbótasýningum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar