Sigvaldi og Elín unnu parafimina í Suðurlandsdeildinni

Sigvaldi og Elín sigurvegarar í parafimi Mynd: Suðurlandsdeildin
Keppni hófst í Suðurlandsdeildinni í kvöld. Keppt er í parafimi og slaktaumatölti T4.
Parafimi er sérgrein í Suðurlandsdeildinni en þar keppa einn atvinnu- og einn áhugaknapi úr hverju liði í pörum.
Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Elín Hrönn Sigurðardóttir unnu parafimina að þessu sinni en þau keppa fyrir lið Vöðla/Snilldarverks/Sumarliðabæjar.
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr parafimi kvöldsins.
1. Sigvaldi Lárus Guðmundsson Fenrir frá Kvistum og Elín Hrönn Sigurðardóttir Elsa frá Skógskoti Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær 6,99
2. Sigurður Sigurðarson Rauða-List frá Þjóðólfshaga og Sævar Örn Sigurvinsson Fjöður frá Hrísakoti Krappi 6,81
3. Ólafur Þórisson Fáfnir frá Miðkoti og Sarah Maagaard Nielsen Djörfung frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir 6,79
4. Arnhildur Helgadóttir Svala frá Hjarðartúni og Ívar Örn Guðjónsson Þróttur frá Hvammi Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún 6,72
5. Elsa Mandal Hreggviðsdóttir Dröfn frá Feti og Maiju Maaria Varis Hallveig frá Kráku Eskotomic Polar 6,64
6. Elín Árnadóttir Krafla frá Vík í Mýrdal og Brynjar Nói Sighvatsson Iða frá Vík í Mýrdal Gröfuþjónustan Hvolsvelli ehf. 6,56
7. Alma Gulla Matthíasdóttir Ágúst frá Hrauni og Heiðdís Arna Ingvarsdóttir Glúmur frá Vakurstöðum Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás 6,35
8. Julian Oliver Titus Juraschek Kjarni frá Herríðarhóli og Ásdís Brynja Jónsdóttir Hátign frá Hofi Herríðarhóll/Þorleifskot 6,25
9. Ingunn Birna Ingólfsdóttir Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 og Jakobína Agnes Valsdóttir Örk frá Sandhólaferju Dýralæknar Sandhólaferju 5,80
10. Dagbjört Skúladóttir Dagrós frá Dimmuborg og Brynhildur Sighvatsdóttir Karítas frá Votmúla 1 Hestagallerý 5,72
11. Sigurbjörg Bára Björnsdóttir Gullfoss frá Vorsabæ II og Matthildur María Guðmundsdóttir Glaumur frá Efri-Brúnavöllum I Friðheimar/Efri-Brúnavellir 5,38
12. Húni Hilmarsson Fannar frá Skammbeinsstöðum 1 og María Guðný Rögnvaldsdóttir Elíta frá Mosfellsbæ Hrímnir/Gulltoppur 5,27