Skráning hafin á Menntaráðstefnu FEIF og LH
Menntanefndir LH og FEIF halda Menntaráðstefnu í Skagafirði dagana 23.-25. september 2026, dagana fyrir Laufskálarétt. Ráðstefnan hefst eftir hádegi miðvikudaginn 23. og endar um hádegi föstudaginn 25. september.
Staðsetning:
Ráðstefnan fer fram í Skagafirði, bæði í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og á Hólum í Hjaltadal
Ráðstefnan:
Meginþema ráðstefnunnar er gangskiptingar, gangsetning og hraðabreytingar.
Fræðslan verður í höndum þaulreyndra kennara þar sem þar sem horft verður til skiptinga á milli mismunandi gangtegunda, gangsetningu og skeiðþjálfun ungra hrossa. Einnig verður fjallað um hvernig reiðkennarar nálgast viðfangsefnið með nemendum sínum og hlutverk ásetu í þessum verkefnum. Ráðstefnan mun byggjast upp að mestu leiti á sýnikennslu, umræðum og fyrirlestrum um fræðin sem liggja þar að baki.
Kennarar og fyrirlesarar:
Fjölbreyttur hópur sem skipar heimsmeistara, meistarar FT og sérfræðinga úr fremstu röð. Hópurinn verður kynntur á næstu dögum.
Fyrir hverja?
Ráðstefnan er hugsuð fyrir þjálfara og reiðkennara og gildir þátttaka sem símenntun fyrir Menntamatrixu FEIF og LH (16 einingar).
Dómarar sem og aðrir áhugasamir aðilar eru einnig velkomin.
Skráning:
Skráning stendur yfir og lýkur 5. maí.
10% afsláttur fyrir þá sem skrá sig fyrir 3. apríl.
Takmark á fjölda og fyrstir koma fyrstur fær.
Verð:
Verð er 60.000 kr. fyrir alla ráðstefnuna, miðvikudagseftirmiðdagur til hádegis á föstudegi. Innifalið er hádegismatur og kvöldmatur fimmtudeginum ásamt kaffi og léttum veitingum.
Vinsamlegast sendið kvittun á netfangið: gjaldkeri@lhhestar.is
Skráning hafin á Menntaráðstefnu FEIF og LH
Keppnishross í Meistaradeild Líflands
Skráning hafin á Kvennatölt Spretts
Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks 21. mars 2026
Folaldasýning Geysis