Skráning og lágmörk á Íslandsmót ungmenna og fullorðinna

Mótssvæði er í loka undirbúning og má búast við einu flottasta svæði landsins í hátíðarbúningi.
Þátttökurétt eiga þau pör sem hafa náð lágmörkum í hringvallagreinum á þessu ári. Lágmörk gilda einnig í skeiðgreinum, 100m, 150m, 250m og gæðingaskeiði.
Skráning hefst 15. júní og henni lýkur 19. júní. Skráningargjald er 15.000kr í hverja grein. Skráning fer fram í sportfeng og velja þarf Sleipni sem mótshaldara. Frekari upplýsingar á netfangið islandsmot@sleipnir.is
Lágmörk á Íslandsmót 2025 eru sem hér segir:
F1- Fimmgangur Fullorðnir – 6,80
F1 – Fimmgangur Ungmenni – 6,10
V1 – Fjórgangur Fullorðnir – 7,00
V1 – Fjórgangur Ungmenni – 6,50
T1 – Tölt Fullorðnir – 7,40
T1 – Tölt Ungmenni – 6,60
T2 – Tölt Fullorðnir – 7,00
T2 – Tölt Ungmenni – 6,20
PP1 – Gæðingaskeið Fullorðnir – 7,10
PP1 – Gæðingaskeið Ungmenni – 5,90
P2 – 100m skeið Fullorðnir – 8.0 sek
P2 – 100m skeið ungmenni – 9,0 sek
P3 – 150m skeið fullorðnir – 15,40 sek
P3 – 150m skeið Ungmenni – 17.00 sek
P1 – 250m skeið fullorðnir – 24.80 sek
P1 – 250m skeið Ungmenni – 26.00 sek