Skráningar á miðsumarssýningar

Opnað verður á skráningar á miðsumarssýningar mánudaginn 23. júní kl. 9:00. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði en lokaskráningardagur á hverja sýningu er föstudagurinn, 4. júlí, en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umsjónamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu.
- 14. júlí – 18. júlí – Rangárbakkar við Hellu, vika 1
- 21. júlí – 25. júlí – Rangárbakkar við Hellu, vika 2
- 21. júlí – 25. júlí – Akureyri
- 28. júlí – 1. ágúst – Rangárbakkar við Hellu, vika 3
RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross.
Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum er hægt að nálgast á vef RML eða með því að hringja í síma 516-5000. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið hross@rml.is.