Meistaradeild KS í hestaíþróttum Slaktaumtölt í Meistaradeild KS

  • 26. febrúar 2026
  • Fréttir
Mótið hefst klukkan 19:00 í beinni á EiðfaxaTV

Annað mótið í Meistaradeild KS fer fram annað kvöld, föstudaginn 27. febrúar, í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki, Mótið hefst klukkan 19:00 og er það fyrirtækið Diesel Afl sem býður áhorfendum frítt á viðburðinn. Að þessu sinni er keppt í slaktaumatölti.

Að fyrsta mótinu loknu er það lið Hrímnis sem leiðir í liðakeppninni með 74 stig, lið Hofstorfunnar-550 er með 59,5 stig og Uppsteypa með 57 stig. Vera Schneiderchen er efst í einstaklingskeppni eftir að hafa unnið fjórgang á Feyki frá Selfossi en þau eru á meðal keppenda í slaktaumatölti.

Reynd pör á meðal keppenda

Ef miðað er við niðurstöðu síðasta árs í slaktaumtölti í Meistaradeild KS er ekki að finna mörg af þeim pörum sem þar stóðu á meðal efstu knapa. Af þeim 10 pörum sem ríður til A- eða B-úrslita eru bara tvö pör á meðal þeirra sem skráð eru. Það eru Finnbogi Bjarnason á Eini frá Enni sem urðu í 8.sæti og Elvar Einarsson á Muna frá Syðra-Skörðugili sem urðu í 10.sæti.

Af þeim hrossum sem skráð eru í mótið er það Hagur frá Hofi á Höfðaströnd sem efstur stendur á stöðulista síðasta árs í þessari grein í fullorðinsflokki. Þá keppti á honum Sigrún Rós Helgadóttir og hlaut hæst 7,27 í forkeppni í slaktaumatölti. Annað kvöld er það Þorsteinn Björn Einarsson sem keppir á Hag. Þá er Matthías Sigurðssn skráður til leiks á Víkingi frá Hlemmiskeiði 2 sem faðir hans, Sigurður V. Matthíasson, reið á til B-úrslita í Meistaradeild Líflands fyrir tveimur vikum síðan. Þá hafa Metta Mannseth og Töfri frá Þúfum gert vel í þessari grein og hlutu m.a. 7,42 í einkunn á alþjóðlegu íþróttamóti á Hólum árið 2024.

Fleiri pör eru á listanum sem vel hafa gert þessari grein til viðbótar sem hér á undan eru nefnd. Það verður því spennandi að sjá hvað gerist í þessari grein sem verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Ráslisti

Nr. Knapi Hestur Lið
1 Finnbogi Bjarnason Einir frá Enni Storm Rider
2 Björg Ingólfsdóttir Valíant frá Miðhjáleigu Lífland
3 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum Þúfur
4 Þorsteinn Björnsson Gefjun frá Hólum Uppsteypa
5 Karítas G. Thoroddsen Rökkvi frá Miðhúsum Bústólpi
6 Kristján Árni Birgisson Stúdent frá Ásmúla Hrímnir/Hestklettur
7 Sigrún Rós Helgadóttir Kolgrímur frá Eydal Hofstorfan/550
8 Sigurður Dagur Eyjólfsson Andrá frá Mykjunesi 2 Exar
9 Agnar Þór Magnússon Jósteinn frá Íbishóli Íbishóll
10 Elvar Einarsson Muni frá Syðra-Skörðugili Storm Rider
11 Lilja Dögg Ágústsdóttir Hryggur frá Hryggstekk Lífland
12 Sigurður Heiðar Birgisson Fagri frá Skeiðvöllum Íbishóll
13 Atli Freyr Maríönnuson Sif frá Staðarhofi Hofstorfan/550
14 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Sindri frá Lækjamóti II Uppsteypa
15 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Þytur frá Stykkishólmi Exar
16 Herjólfur Hrafn Stefánsson Yllir frá Reykjavöllum Bústólpi
17 Lea Christine Busch Kvaran frá Ölduhofi Þúfur
18 Matthías Sigurðsson Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 Hrímnir/Hestklettur
19 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Hátíð frá Garðsá Lífland
20 Sigurður Steingrímsson Sindri frá Kálfsstöðum Exar
21 Barbara Wenzl Maístjarna frá Naustum III Þúfur
22 Julian Veith Tindur frá Núpstúni Storm Rider
23 Magnús Bragi Magnússon Óskhyggja frá Íbishóli Íbishóll
24 Herdís Björg Jóhannsdóttir Stofn frá Akranesi Uppsteypa
25 Þorsteinn Björn Einarsson Hagur frá Hofi á Höfðaströnd Hofstorfan/550
26 Vera Evi Schneiderchen Feykir frá Selfossi Hrímnir/Hestklettur
27 Björgvin Helgason Eyjasól frá Litlu-Brekku Bústólpi

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar