Steffi og Saga danskir meistarar í gæðingaskeiði

Danska meistaramótið hófst í dag en riðin var forkeppni m.a. í fimmgangi F1 og fjórgangi V1 í meistaraflokki. Ríkjandi heimsmeistarar í fimmgangi Jón Stenild og Eilífur fra Teglborg er efstir eftir forkeppni með 7,80 í einkunn. Í fjórgangnum er Dennis Hedebo Johansen á Muna fra Bendstrup efstur með 7,77 í einkunn og annar er Jóhann Rúnar Skúlason á Evert fra Slippen með 7,60 í einkunn.
Steffi Svendsen er danskur meistari í gæðingaskeiði á Sögu fra Teland en þær hlutu 8,17 í einkunn sem tryggði þeim fyrsta sætið. Sigurður Óli Kristinsson varð í öðru sæti á Laxnes frá Ekru með 7,17 í einkunn og Anne Frank Andresen varð þriðja á Vökli frá Leirubakka með 7,13 í einkunn.

HÉR er hægt að sjá heildar niðurstöður mótsins en hér fyrir neðan eru efstu 10 í gæðingaskeiði, fimmgangi og fjórgangi.
Gæðingaskeið PP1 – Niðurstöður – Efstu 10
1 Steffi Svendsen Saga fra Teland 8,17
2 Sigurður Óli Kristinsson Laxnes frá Ekru 7,17
3 Anne Frank Andresen Vökull frá Leirubakka 7,13
4 Rebecca Hesselbjerg Taulborg Tindra fra Kirstineholm 6,92
5 Kaya Maisie Hansen Oður fra Jór 6,88
6 Kristian Tofte Ambo Bósi frá Húsavík 6,54
7 Henrik Gohn Rakel frá Skipaskaga 6,08
8 Freja Løvgreen Fjölvi fra Hedegaard 6,04
9 Søs Neergaard Andersen Ísold frá Efri-Rauðalæk 5,88
10 Susanne Larsen Murphy Völsungur frá Skeiðvöllum 5,83
Fimmgangur F1 – Niðurstöður – Forkeppni – Efstu 10
1 Jón Stenild Eilífur fra Teglborg 7,80
2 Anne Frank Andresen Vökull frá Leirubakka 7,13
3 Sasha Sommer Kommi fra Enighed DK2006104664 6,93
4 Søren Madsen Skinfaxi fra Lysholm DK2012100113 6,90
5 Smilla Beyer Leó fra Nøddegården DK2015100207 6,80
5 Kristian Tofte Ambo Bósi frá Húsavík IS2011166018 6,80
7 Sigurður Óli Kristinsson Árvakur frá Auðsholtshjáleigu IS2016187053 6,67
8 Sigurður Óli Kristinsson Freisting frá Háholti IS2015288028 6,60
9 Alberte Smith Vaki frá Auðsholtshjáleigu IS2011187015 6,50
10 Kristian Tofte Ambo Rósalín fra Almindingen DK2016200657 6,40
10 Sys Pilegaard Muni vom Hrafnsholt DE2006134453 6,40
10 Julie Christiansen Elrir frá Rauðalæk IS2011181901 6,40
Fjórgangur V1 – Niðurstöður – Forkeppni – Efstu 10
1 Dennis Hedebo Johansen Muni fra Bendstrup 7.77
2 Jòhann Rùnar Skùlason Evert fra Slippen 7.60
3 Frederikke Stougård Austri frá Úlfsstöðum 7.53
4 Julie Christiansen Felix frá Blesastöðum 1A 7.10
5 Søren Agerskov Madsen Nökkvi fra Bendstrup 7.07
6 Jessica Hou Geertsen Hagur frá Vorsabæ II 7.00
7 Alberte Smith Arnar fra Store Skovgaard 6.90
8 Birgitte Sandvik Núpur fra Bendstrup 6.87
8 Laura Midtgård Gimsteinn frá Íbishóli 6.87
10 Iben Katrine Andersen Gideon fra Tømmerby Kær 6.67