Stóðhestaveislan styrkir minningarsjóð Bryndísar Klöru

Í ár styður stóðhestaveislan minningarsjóð Bryndísar Klöru en sjóðurinn var stofnaður til að heiðra og varðveita minningu Bryndísar Klöru Birgisdóttur sem lést í kjölfar hnífaárásar á menningarnótt í Reykjavík í ágúst 2024.
„Tilgangur og markmið sjóðsins er að styðja við almannaheillaverkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni. Sjóðurinn mun leggja áherslu á að veita styrki til fræðslu, rannsókna og vitundarvakningar til að koma í veg fyrir að slíkar hörmungar endurtaki sig.“
Eins og áður á Stóðhestaveislunni verða seldir happdrættismiðar um kvöldið og eftir hana og einnig verður uppboð á folatolli undir einn besta hest landsins á staðnum. Allur ágóði af söfnunni rennur til minningarsjóðs Bryndísar Klöru.
Einstaklingar og fyrirtæki sem vilja styðja við málefnið með happadrættisvinningum eða beinum fjárstuðningi geta haft samband við Magnús Benediktsson s: 893 3600 eða maggiben@gmail.com