Landsamband hestamanna Stórmót auglýst til umsóknar

  • 11. september 2025
  • Fréttir
Dagsetningar mótanna eru ákveðnar í samráði við mótshaldara og að teknu tilliti til dagsetninga annarra móta.

Landssamband hestamannafélaga auglýsir til umsóknar eftirfarandi mót:

  • Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2028
  • Íslandsmót barna og unglinga 2028
  • Íslandsmót í gæðingalist 2026 (innanhússmót sem haldið skal fyrir 15. maí)
  • Áhugamannamót Íslands 2026

Dagsetningar mótanna eru ákveðnar í samráði við mótshaldara og að teknu tilliti til dagsetninga annarra móta.

Á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna er keppt í íþróttakeppni í efsta styrkleikaflokki þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu.

Á Íslandsmóti barna og unglinga er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni.

Á Íslandsmóti í gæðingalist er keppt í öllum aldursflokkum og skal mótið haldið fyrir 15. maí 2026.

Á Áhugamannamóti Íslands er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni í 1., 2.  og 3. flokki.

Umsóknir áhugasamra mótshaldara skulu berast Landssambandi hestamannafélaga fyrir 1. október nk. á netfangið lh@lhhestar.is.

 

www.lh.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar