Strengur frá Þúfum efstur

  • 21. nóvember 2023
  • Fréttir

Strengur frá Þúfum á stökki, knapi Gísli Gíslason. Ljósmynd: Aðsend

Grúskað í kynbótamatinu

Nýr kynbótamatsútreikningur birtist í Worldfeng nú um miðjan október. Fjöldi alþjóðlegra kynbótadóma (fullnaðardóma) sem lágu til grundvallar útreikningnum að þessu sinnu var 36.160. Fyrir forvitna hestaspekúlanta er gaman að skoða nýja kynbótamatsútreikninga og spá í spilin.

Nú beinum við sjónum okkar að þeim stóðhestum sem hafa 132 eða meira í aðaleinkunn kynbótamats og eiga ekki sýnd afkvæmi í kynbótadómi. Þeirra mat byggir því á þeirra eigin kynbótadómi og/eða ætternisupplýsingum. Allir eru þessir hestar ræktaðir á Íslandi.

Strengur frá Þúfum stendur vel í kynbótamatinu með 136 stig í aðaleinkunn en hann er jafnframt næsthæst dæmdi 4. vetra stóðhestur frá upphafi dóma með 8.65 í aðaleinkunn. Faðir Strengs er Sólon frá Þúfum og móðir Harpa frá Þúfum sem bæði eru útaf heiðursverðlaunahryssunni Nótu frá Stóra-Ási. Ræktendur og eigendur Strengs eru Gísli Gíslason og Mette Mannseth.

Næstur á eftir Streng kemur Eldklettur frá Prestsbæ en hann er undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Þotu frá Prestsbæ, ræktendur hans eru Inga og Ingar Jensen en eigandi er Brúarskarð BV hann er með 135 stig í kynbótamati.

Hér fyrir neðan má sjá töflu með þeim stóðhestum sem um ræðir, foreldra, aðaleinkunn kynbótamats og öryggi.

Nafn Faðir Móðir Aldur Aðaleinkunn Öryggi
Strengur frá Þúfum Sólon frá Þúfum Harpa frá Þúfum 4 136 81%
Eldklettur frá Prestsbæ Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólium Þota frá Prestsbæ 2 135 64%
Bláþráður frá Prestsbæ Þráinn frá Flagbjarnarholti Þrá frá Prestsbæ 2 134 63%
Frakkur frá Flagbjarnarholti Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólium Fold frá Flagbjarnarholti 2 134 63%
Nn frá Geitaskarði Skýr frá Skálakoti Hrönn frá Ragnheiðarstöðum 1 134 64%
Skarði frá Þúfum Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólium Harpa frá Þúfum 1 133 64%
Nn frá Miklholti Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólium Urður fra Akureyri 1 133 63%
Fleygur frá Geitaskarði Adrían frá Garðshorni á Þelamörk Hrönn frá Ragnheiðarstöðum 3 133 61%
Engill frá Prestsbæ Kveikur frá Stangarlæk Þota frá Prestsbæ 4 133 62%
Kambur frá Feti Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólium Malín frá Feti 1 132 63%
Þróttur frá Hæli Þráinn frá Flagbjarnarholti Örk frá Lynghóli 2 132 62%
Sóló frá Þúfum Sólon frá Þúfum Eygló frá Þúfum 2 132 61%
Sær frá Hjarðartúni Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólium Dögun frá Hjarðartúni 1 132 64%
Vísir frá Þúfum Skýr frá Skálakoti List frá Þúfum 3 132 65%
Seiður frá Hólum Trymbill frá Stóra-Ási Ösp frá Hólum 8 132 82%
Nn frá Fákshólum Skýr frá Skálakoti Sending frá Þorlákshöfn 2 132 66%
Askur frá Skógarnesi Þráinn frá Flagbjarnarholti Urður fra Akureyri 2 132 62%
Nn frá Ragnheiðarstöðum Skýr frá Skálakoti Hávör frá Ragnheiðarstöðum 1 132 64%

Gott er að hafa í huga þegar kynbótamatið er skoðað að þetta er spá um kynbótagildi hrossa og því þarft að hafa öryggið til hliðsjónar því eftir því sem öryggið er meira því hærra verður forspárgildi kynbótamatsins. Allir hafa þessir hestar 90% öryggi eða meira í kynbótamatinu.

Nánar má lesa um kynbótamat og erfðaframför í íslenska hrossastofninum með því að smella hér.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar