Sýnikennsla með Súsönnu Sand

  • 19. febrúar 2023
  • Tilkynning
Sýnikennslan verður í Herði, Mosfellsbæ.

Súsanna Sand Ólafsdóttir verður með sýnikennslu í Herði fimmtudaginn, 23. febrúar, í Reiðhöllinni í Mosó. Það kostar 1.500 kr. inn á sýnikennsluna en frítt er fyrir 21 árs og yngri.

Súsanna Sand er reiðkennari frá Hólum og hefur endurmenntað sig undanfarin ár í spænskri reiðmennsku í Andalúsíu. Þar er lögð áhersla á líkamsbeitingu knapa og hests með áherslu á burð léttleika og þjálni, sem nýtist afar vel inn i okkar reiðmennsku. Súsanna er einnig íþrótta og gæðingakeppnisdómari.

„Hlökkum til að sjá sem flesta í Reiðhöllinni í Herði í Mosfellsbær,“ segir í tilkynningu frá fræðslunefnd Harðar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar