Teitur og Taktur blanda sér í baráttuna um titilinn

  • 3. júlí 2021
  • Fréttir

B-úrslitahrinunni lauk nú rétt í þessu með algjörri töltveislu í meistaraflokki. Teitur Árnason tryggði sér sæti í A-úrslitum og blandar sér því í baráttuna um Íslandsmeistaratitil í þeirri grein. Seinni í dag fer svo fram keppni í gæðingaskeiði og öll A-úrslit auk 100 metra skeiðis á morgun.

 

Verðlaunahafar í B-úrslitum í Tölti T1

 

Sæti Keppandi Heildareinkunn
6 Teitur Árnason / Taktur frá Vakurstöðum 8,50
7 Helga Una Björnsdóttir / Fluga frá Hrafnagili 8,44
8 Leó Geir Arnarson / Matthildur frá Reykjavík 8,33
9 Mette Mannseth / List frá Þúfum 8,22
10 Hanna Rún Ingibergsdóttir / Grímur frá Skógarási 8,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar