Þórarinn, Sigurður og Konráð hlutskarpastir

Aðrir skeiðleikar skeiðfélagsins, Fóðurblöndunnar og Hrímnis fóru fram í kvöld á Brávöllum Selfossi og voru í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.
Sigurður Sigurðarson og Tromma frá Skúfslæk voru með besta tímann í 250 m. skeiðinu eða 22,37 sek. Í öðru sæti varð Gústaf Ásgeir Hinriksson á Sjóði frá Þóreyjarnúpi með tímann 22,58 sek. og í þriðja Ásmundur Ernir Snorrason og Númi frá Árbæjarhjáleigu með tímann 24.22 sek.
Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu fóru hraðast 150 metrana á tímanum 14.90 sek. Vilborg Smáradóttir og Klókur frá Dallandi fóru næst hraðast á tímanum 15,09 sek. og í þriðja sæti voru Bjarni Bjarnason og Drottning frá Þóroddsstöðum með tímann 15,37 sek.
Í 100 m. skeiðinu varð hlutskarpastur skeiðfélagsmaðurinn Þórarinn Ragnarsson með hest sinn Frey frá Hraunbæ á tímanum 7,63 sek. Annar varð Sigurður Sigurðarson með hryssuna Trommu frá Skúfslæk á tímanum 7,72 sek. Þriðja besta tíman átti Hinrik Ragnar Helgason á Stirni frá Laugavöllum á tímanum 7,74.
Næstu skeiðleikar fara fram á Brávöllum miðvikudaginn 9.júlí.

Skeið 250m P1
Sæti Knapi Hross Tími
1 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 22,37
2 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 22,58
3 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II 24,22
4 Erlendur Ari Óskarsson Dimma frá Skíðbakka I 24,36
5 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Sæla frá Hemlu II 24,62
6-7 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 0,00
6-7 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði 0,00

Skeið 150m P3
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,90
2 Vilborg Smáradóttir Klókur frá Dallandi 15,09
3 Bjarni Bjarnason Drottning frá Þóroddsstöðum 15,37
4 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Glitra frá Sveinsstöðum 15,87
5 Þorgils Kári Sigurðsson Bjarki frá Áskoti 17,78
6 Húni Hilmarsson Fífa frá Dísarstöðum 2 19,26
7-10 Kjartan Ólafsson Von frá Borgarnesi 0,00
7-10 Erlendur Ari Óskarsson Hrafnkatla frá Ólafsbergi 0,00
7-10 Sigurbjörg Helgadóttir Hörpurós frá Helgatúni 0,00
7-10 Ísólfur Ólafsson Sólstjarna frá Hárlaugsstöðum 2 0,00

Flugskeið 100m P2
Sæti Knapi Hross Tími
1 Þórarinn Ragnarsson Freyr frá Hraunbæ 7,63
2 Sigurður Sigurðarson Tromma frá Skúfslæk 7,72
3 Hinrik Ragnar Helgason Stirnir frá Laugavöllum 7,74
4 Konráð Valur Sveinsson Flugsvinn frá Ytra-Dalsgerði 7,77
5 Gústaf Ásgeir Hinriksson Sjóður frá Þóreyjarnúpi 7,79
6 Sveinn Ragnarsson Kvistur frá Kommu 7,80
7 Ísólfur Ólafsson Gnýr frá Brekku 7,80
8 Hjörvar Ágústsson Orka frá Kjarri 7,99
9 Ásmundur Ernir Snorrason Númi frá Árbæjarhjáleigu II 8,03
10 Sigurður Sigurðarson Glettir frá Þorkelshóli 2 8,03
11 Erlendur Ari Óskarsson Spes frá Stóra-Hofi 8,10
12 Ásmundur Ernir Snorrason Syrpa frá Litlalandi Ásahreppi 8,29
13 Valdís Björk Guðmundsdóttir Hveragerður frá Brekku 8,41
14 Katrín Eva Grétarsdóttir Koltur frá Stóra-Bakka 8,44
15 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði 8,47
16 Davíð Matthíasson Bylgja frá Eylandi 8,47
17 Svanhildur Guðbrandsdóttir Pittur frá Víðivöllum fremri 8,71
18 Laufey Fríða Þórarinsdóttir Tromma frá Laufhóli 8,72
19 Iris Cortlever Seyla frá Selfossi 8,85
20 Vigdís Matthíasdóttir Hrauna frá Eylandi 8,86
21 Ísólfur Ólafsson Sólstjarna frá Hárlaugsstöðum 2 8,89
22 Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir Kjarkur frá Feti 9,15
23-24 Katrín Ósk Kristjánsdóttir Lína frá Miklaholtshelli 9,71
23-24 Cecilie Hou Geertsen Tign frá Auðsholtshjáleigu 9,71
25 Unnsteinn Reynisson Fía frá Langsstöðum 10,17
26-27 Lea Björg Ólafsdóttir Penni frá Kirkjuferjuhjáleigu 0,00
26-27 Hinrik Bragason Bríet frá Austurkoti 0,00