Landsamband hestamanna Þrír knapar bætast við U21 hópinn

  • 19. júní 2025
  • Fréttir
Það styttist í heimsmeistaramótið í Sviss en það fer fram dagana 3. - 11. ágúst.

Landsliðsþjálfararnir fylgjast nú grant með framvindu mála en Reykjarvíkurmeistaramótið var annað af tveimur skyldumótum landsliðsknapanna.

Hekla Katharína þjálfari U21 hefur nú ákveðið að bæta þremur knöpum í U21 hópinn. Þessir knapar stefna að sjálfsögðu á Heimsmeistaramót íslenska hestsins og hafa á tímabilinu vakið athygli landsliðsþjálfara fyrir góðan árangur. Þau munu mæta með hesta sína á Íslandsmót ungmenna sem hefst í næstu viku.

Bætast þau inní U21 árs landsliðshópinn og hann skipa því orðið 19 knapar.

Knaparnir eru :

  • Eik Elvarsdóttir, hestamannafélagið Geysir
  • Guðrún Lilja Rúnarsdóttir, hestamannafélagið Hörður
  • Ragnar Snær Viðarsson, hestamannafélagið Fákur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar