Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Top Reiter leiðir liðakeppnina

  • 29. janúar 2022
  • Fréttir
Staðan í liðakeppni Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum eftir eina grein

Fjórgangskeppni Meistaradeildarinnar fór fram síðast liðinn fimmtudag en Sigurður Sigurðarsson á Leik frá Vesturkoti sigraði fjórganginn en hann keppti fyrir lið Þjóðólfshaga / Sumarliðabæ en liðið endaði í þriðja sæti í liðakeppninni eftir kvöldið.

Staðan í liðakeppninni eftir fjórganginn er hægt að sjá hér fyrir neðan en lið Top Reiter leiðir hana með 51,5 stig. Of snemmt er að segja til um hvaða lið munu blanda sér í toppbaráttuna en nóg af stigum er eftir enda einungis ein grein búin af átta. Öruggt er þó að Top Reiter stefnir á sjötta sigurinn en liðið er eitt farsælasta lið deildarinnar frá upphafi. Knapar í ár eru þeir sömu og lönduðu sigri í liðakeppninni í fyrra; liðsstjóri Teitur Árnason, Árni Björn Pálsson, Eyrún Ýr Pálsdóttir, Hanna Rún Ingibersdóttir og Konráð Valur Sveinsson.

Á eftir Top Reiter er lið Ganghesta / Margrétarhofs en liðsmenn þar eru Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Glódís Rún Sigurðardóttir, Ragnhildur Haraldsdóttir, Reynir Örn Pálmason og Sigurður V. Matthíasson.

Staðan í liðakeppni Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum eftir eina grein er eftirfarandi:

Lið StigTop Reiter      51,5Ganghestar / Margrétarhof       47Þjóðólfshagi / Sumarliðabær     43Hestvit / Árbakki       39Auðholtshjáleiga HORSEXPORT     37,5Skeiðvellir / Storm rider       31,5Hrímnir / Hest.is       29,5Hjarðartún      21

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar