Norðurlandamót U21 Landslið Íslands á Norðurlandamóti

  • 17. júlí 2024
  • Fréttir
Norðurlandamótið í hestaíþróttum fer fram dagana 8. - 11. ágúst í Herning í Danmörku.

Landssamband hestamannafélaga hefur gefið út hvaða knapar munu keppa fyrir Íslands hönd í yngri flokkunum. Knapar í U21 árs hópnum sem fara á mótið eru á aldrinum 16 – 21 árs. Þessir knapar munu spreyta sig ýmist einungis í íþróttagreinum mótsins og/eða gæðingakeppnisgreinum mótsins. Í næstu viku verða hestarnir kynntir og keppnisgreinarnar sem parið mun spreyta sig í.

“Íslenska liðið þarf að mestu leyti að stóla á lánshesta á Norðurlandamóti og því er mótið ansi skemmtileg áskorun. Að þessu sinni var til að mynda enginn útflutningur á hestum frá Íslandi frá 12.júlí fram í miðjan ágúst. Það gerði það að verkum að einungis einn hestur var fluttur út þann 1.júlí og verður orðinn fullbólusettur þegar mótið hefst. Liðið þarf því að treysta á hesteigendur í Evrópu til að hjálpa við að hesta liðið og hefur það gengið vel og erum við hesteigendum virkilega þakklát,” segir í tilkynningunni.

Eftirfarandi knapar hafa verið valdir í hópinn :

Dagur Sigurðarson, Geysir
Elva Rún Jónsdóttir, Sprettur
Embla Lind Ragnarsdóttir, Sleipnir
Guðný Dís Jónsdóttir, Sprettur
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal, Þytur
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir, Snæfellingur
Hekla Rán Hannesdóttir, Sprettur
Herdís Björg Jóhannsdóttir, Sprettur
Hulda María Sveinbjörnsdóttir, Sprettur
Matthías Sigurðsson, Fákur
Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson, Sprettur
Ragnar Snær Viðarsson, Fákur
Selma Leifsdóttir, Fákur

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar