Undir hvern fóru þær?

  • 27. desember 2022
  • Fréttir
Undir hvaða stóðhest var heiðursverðlaunahryssunum haldið í sumar.

„Undir hvern fóru þær?“ hafa alltaf verið vinsælar greinar hér á vefnum. Ræktendur virðast hafa mikinn áhuga á því að sjá hvaða stóðhesta aðrir eru að velja á hryssurnar sínar. Eiðfaxi heldur áfram að taka fyrir nokkrar af þeim hryssum sem hlutu heiðursverðlaun á Haustráðstefnu Fagráðs nú í nóvember.

Álöf frá Ketilsstöðum er fylfull við Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum. Álöf er undan Álfi frá Selfossi og Hefð frá Ketilsstöðum en Jón Bergsson ræktaði hryssuna og er hún eigu Guðbrands Stígs Ágústssonar. Álöf á sex sýnd afkvæmi og hæst dæmda afkvæmi hennar er Hrannarssonurinn Steinar frá Stíghúsi sem hlaut 8,40 í aðaleinkunn, 8,36 fyrir sköpulag og 8,42 fyrir hæfileika.

Mirra frá Þúfu í Landeyjum er undan Orra og Iðu frá Þúfu í Landeyjum. Indriði Theódór Ólafsson er ræktandi hryssunnar en eigandi er Susanne Braun. Mirra á fimm sýnd afkvæmi og hæstan ber að nefna Hófssoninn Mökk frá Flagbjarnarholti. Mökkur hlaut í aðaleinkunn 8,29, fyrir sköpulag hlaut hann 8,42 og fyrir hæfileika 8,22. Mirru var haldið undir Vonanda frá Halakoti.

Spes frá Ketilsstöðum er undan Sveini-Hervari frá Þúfu í Landeyjum og Þernu frá Ketilsstöðum. Jón Bergsson er ræktandi hennar en eigandi er Bergur Jónsson. Spes á fimm sýnd afkvæmi og er hæst dæmda afkvæmi hennar Skýsdóttirin Rauðka frá Ketilsstöðum. Rauðka hlaut fyrir sköpulag 7,95 og fyrir hæfileika 8,14 sem gerir 8,07 í aðaleinkunn. Spes var haldið undir Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum

Lýsing frá Þúfum var haldið undir Hannibal frá Þúfum. Þau Gísli Gíslason og Mette Mannseth eru ræktendur og eigendur hennar. Lýsing er undan Hróðri frá Refsstöðum og Birtu frá Ey II. Lýsing á fimm sýnd afkvæmi. Hæsta ber að nefna Stjörnuspá frá Þúfum undan Stjörnustæl frá Dalvík. Stjörnuspá hlaut fyrir sköpulag 8,63 og fyrir hæfileika 8,47 sem gerir 8,53 í aðaleinkunn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar