Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Uppboðssæti: Gæðingaskeið og 150m skeið!

  • 17. mars 2026
  • Fréttir

Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í gæðingaskeiði og 150m skeiði. Keppt verður laugardaginn 21. mars næstkomandi.
Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 19. mars kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is.

Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi geti keypt sér keppnisrétt í einstaka grein. Ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Ef hæstu boð eru jöfn munu allir knaparnir hljóta keppnisrétt. Hægt er að nálgast reglur deildarinnar HÉR.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar