Uppskeruhátíð Hrossaræktarfélags Flóahrepps
Hrossaræktarfélag Flóahrepps blæs til glæsilegrar uppskeruhátíðar í Vatnsholti föstudagskvöldið 27. febrúar næstkomandi.
Boðið verður upp á hefðbundið hrossakjöt og verðlaun veitt fyrir sýningarárið 2025. Einnig er unnið að því að fá áhugaverðan fróðleik eða fyrirlestur til að krydda dagskrána.
Helstu upplýsingar:
Hvar: Vatnsholt
Hvenær: Föstudagskvöldið 27. febrúar. Húsið opnar kl. 20:00.
Verð: 5.500 kr. á mann. Tilboð verða á barnum!
Skráningarfrestur: Sunnudagskvöldið 22. febrúar.
Skráning:
Hægt er að skrá sig rafrænt með því að smella á þennan hlekk: [Skráningarform – smelltu hér]
Einnig er hægt að skrá sig hjá eftirfarandi aðilum:
Ágúst Ingi: agustk@visir.is / s. 899-5494
Atli Geir: atligeir@hive.is / s. 898-2256
Netfang félagsins: hrff.stjorn@gmail.com
Allar nánari upplýsingar má einnig finna á [Facebook-viðburði hátíðarinnar
Tilkynning til verðlaunahafa kynbótahrossa:
Þeir sem eiga kynbótahross sem fá viðurkenningar hafa allir verið látnir vita og eiga þess kost að senda fulltrúa sinn til að taka við verðlaununum. Stjórnin biður viðkomandi um að láta vita hver kemur, eða hvern þeir tilnefna til að veita viðurkenningunum viðtöku, ef þeir komast ekki sjálfir.
Öll velkomin!
Kv. Stjórn Hrossaræktarfélags Flóahrepps
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Áhugamannadeild Norðurlands hefst á laugardaginn