Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Þorgeir vinnur fimmganginn annað árið í röð

  • 20. febrúar 2026
  • Fréttir
Niðurstöður úr fimmgangnum í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum.

Þau voru spennandi úrslitin í fimmgangnum en leikar fóru svo að Þorgeir Ólafsson sigraði með 7,55 í einkunn á Blíðu frá Bergi. Þetta er annað árið í röð sem Þorgeir vinnur fimmganginn í Meistaradeildinni en hann vann í fyrra á Aþenu frá Þjóðólfshaga 1. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn sem knapi í uppboðssæti vinnur deildina.

Hans Þór Hilmarsson varð annar á Öl frá Reykjavöllum með 7,43 í einkunn og jafnir í þriðja sæti voru þeir Ásmundur Ernir Snorrason á Aski frá Holtsmúla 1 og Árni Björn Pálsson á Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 með 7,33 í einkunn.

Hjarðartún með afgerandi forustu

Lið Hjarðartúns hélt uppteknum hætti og vann liðaplattann. Liðið er nú komið með 126,5 stig og nokkuð afgerandi forustu. Allir knapar voru í úrslitum. Hans endaði í öðru sæti og Jakob og Helga Una röðuð sér í sjötta og sjöunda sætið í B úrslitunum. Lið TopReiter/Sumarliðabæjar er í öðru sæti með 86 stig og Hrímnir/Hest.is í því þriðja með 84 stig.

Ási efstur í einstaklingskeppninni

Ásmundur Ernir leiðir í einstaklingskeppninni með 25,5 stig. Jakob Svavar er þar á eftir með 19 stig og jöfn í þriðja með 18 stig eru Jón Ársæll Bergmann og Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir.

Næst verður keppt í gæðingalist þann 6. mars. Fyrir ykkur sem misstuð af fimmgagnum er hægt að horfa á hann aftur á EiðfaxaTV.

Heildarniðurstöður kvöldsins eru hér fyrir neðan.

Niðurstöður úr fimmgangnum

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Þorgeir Ólafsson Blíða frá Bergi 7,55
2 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum 7,43
3-4 Árni Björn Pálsson Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 7,33
3-4 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 7,33
5 Jón Ársæll Bergmann Seytla frá Íbishóli 7,05

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6-8 Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk 7,36
6-8 Jakob Svavar Sigurðsson Safír frá Laugardælum 7,36
6-8 Helga Una Björnsdóttir Karl frá Kráku 7,36
9 Benjamín Sandur Ingólfsson Goði frá Oddgeirshólum 4 7,17
10 Bergur Jónsson Salvar frá Hellubæ 7,07
11 Flosi Ólafsson Suðri frá Varmalandi 7,05

Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 7,43
2-3 Árni Björn Pálsson Lazarus frá Ásmundarstöðum 3 7,23
2-3 Þorgeir Ólafsson Blíða frá Bergi 7,23
4 Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum 7,10
5 Jón Ársæll Bergmann Seytla frá Íbishóli 7,07
6 Helga Una Björnsdóttir Karl frá Kráku 7,07
7 Jakob Svavar Sigurðsson Safír frá Laugardælum 7,03
8 Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk 6,97
9 Flosi Ólafsson Suðri frá Varmalandi 6,87
10-11 Benjamín Sandur Ingólfsson Goði frá Oddgeirshólum 4 6,87
10-11 Bergur Jónsson Salvar frá Hellubæ 6,87
12 Eyrún Ýr Pálsdóttir Gauti frá Vöðlum 6,73
13 Brynja Kristinsdóttir Regína frá Skeiðháholti 6,70
14 Védís Huld Sigurðardóttir Mánadís frá Litla-Dal 6,53
15 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Starri frá Syðsta-Ósi 6,47
16 Sigurður Vignir Matthíasson Hvirfill frá Mánaskál 6,30
17 Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi 6,03
18 Jóhanna Margrét Snorradóttir Frontur frá Finnastöðum 5,93
19 Teitur Árnason Aþena frá Þjóðólfshaga 1 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar