„Við megum ekki glata íslenska gamminum“

  • 19. nóvember 2021
  • Fréttir

Erlingur á Herjólfi frá Ragnheiðarstöðum Ljósmynd: Jens Einarsson

Erlingur Erlingsson er viðmælandi Hjörvars Ágústssonar í nýjasta þættinum af Á Kaffistofunni.

Þeir fara um víðan völl og þreifa á mörgum málum tengd hestamennsku, reiðmennsku, ræktun, kynbótasýningum og keppni.

Undir lok þáttarins berst talið að kynbótasýningum og þeim breytingum sem urðu á því kerfi árið 2020. Ræða þeir m.a. það hversu lítill munur megi vera á einkunn fyrir hægt tölt og tölt til hæstu einkunna en miðað er við 0,5 í mun þegar einkunnin 9,0 eða hærra er gefin fyrir þann eiginleika.

Erlingur hafði m.a. þetta að segja um þá breytingu.

„Ég held að þetta sé ekki að hjálpa okkur, við förum öll að nota sama hestinn og einblína á hæga töltið. Á sama tíma töpum við út íslenska gamminum sem getur gengið á 45 km hraða á tölti í fullkomnu jafnvægi og takti. Eigum við ekki að verðlauna hann af því hann getur ekki gengið upp á 9,0 á hægu tölti, mér finnst það alveg fatalt. Hann fær kannski 8,5 fyrir hægt tölt sem er frábær einkunn og þ.a.l. merki um mjög góð gæði en getur ekki fengið hæstu einkunnir fyrir tölt. Við þurfum að halda uppá íslenska rýmið og gæðinginn.“

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni HÉR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar